Viðskipti innlent

Minnkandi álútflutningur kemur á óvart

Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Glitnis.
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Glitnis.
Greining Glitnis segir það koma á óvart að í bráðabirgðatölum Hagstofunnar yfir vöruskipti við útlönd skuli vera gert ráð fyrir samdrætti í útflutingi á áli og sjávarafurðum. Eins og greint var frá á Vísi fyrr í dag kom fram að verulegur viðsnúningur er á milli júní og júlímánaðar ef tölur Hagstofunnar ganga eftir. Halli á viðskiptunum í júlí nam 18,2 milljörðum króna en í júní var afgangur upp á 2,3 milljarða. „Er þetta mesti halli á vöruskiptum í einum mánuði frá því í desember 2006 og verulegur viðsnúningur frá júní," segir í fréttabréfi Greiningar Glitnis.

„Þessar tölur eru úr takti við þróun síðustu mánaða og teljum við líklegast að hér sé um samspil tímabundinna þátta að ræða sem tæpast muni endurtaka sig á næstu mánuðum. Rétt er einnig að hafa í huga að lokatölur um vöruskipti, sem birtar verða undir lok mánaðar, kunna að breyta nokkuð ofangreindri niðurstöðu," segir ennfremur. Um leið og vöruinnflutningur eykst um 14,3 prósent á milli mánaða dregur úr útflutingi um 17 prósent. Hagstofan segir vísbendingar um minni útflutning flugvéla, sjávarafurða og áls í júlí og segir Greining Glitnis það koma á óvart, hvað varðar sjávarafurðirnar og álið.

„Afkastageta álveranna hefur verið um 65.000 tonn á mánuði frá því álver Alcoa á Austfjörðum náði fullum afköstum í apríl og gróft áætlað skilar það 15-16 mö.kr. í gjaldeyristekjur á mánuði miðað við gengi krónu og álverð," segir í fréttabréfinu. „Við reiknum því með að um tímabundið bakslag sé að ræða í vöruútflutningi og að hægja muni á innflutningi á næstu mánuðum. Við teljum þannig að vöruskiptajöfnuður batni eftir því sem líður á árið og að jafnt og þétt dragi úr því ytra ójafnvægi sem einkennt hefur íslenska hagkerfið um nokkurra ára skeið," segir að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×