Fá 45 prósentum hærra verð fyrir fiskinn en í fyrra 6. ágúst 2008 12:22 MYND/365
Verðbólga á Íslandi hefur ekki verið hærri í átján ár. Hún er nú komin í 13,6 prósent. Útflytjendur standa hins vegar mun betur að vígi en í fyrra og fiskútflytjendur fengu í sumar nærri 45 prósentum hærra verð fyrir fiskinn en á sama tíma á síðasta ári. Hagstofan sendi í dag frá sér nýja Hagvísa sem boða bæði góð tíðindi og slæm. Slæmu tíðindin eru að vísitala neysluverðs hækkaði í júlí um tæpt prósent frá því í júní sem þýðir að verðbólga á landinu er komin í 13,6 prósent. Eftir því sem næst verður komist er verðbólgan óvíða hærri í Evrópu og helstu viðskiptalöndum. Góðu tíðindin eru þau að vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um nærri 30 prósent á einu ári. Í júní var hún sum sé 29,4 prósentum prósentum hærri en hún var í júní á síðasta ári. Það þýðir að þeir sem framleiða vörur á Íslandi eru að fá tæplega þrjátíu prósentum fleiri krónur fyrir framleiðsluna nú en í fyrra. Þarna vegur fiskur og ál þungt. Fiskútflytjendur eru að fá núna næstum 45 prósentum hærra verð fyrir fiskinn en í fyrra og stóriðjan, þar sem álframleiðslan vegur þyngst, rétt rúmlega 36 prósentum meira. Þá var í júlí 18,5 prósentum dýrara að byggja en á sama tíma í fyrra. Fólk notar kreditkortin æ meir, velta þeirra jókst um tæp tólf prósent á fyrri hluta ársins miðað við sama tíma í fyrra. Og þó að launavísitalan hafi hækkað milli mánaða hefur kaupmáttur launafólks dregist saman um 3,7 prósent milli júní nú og í fyrra.
Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira