SPRON samþykkir samrunann við Kaupþing 6. ágúst 2008 20:42 Stjórnendur SPRON á fundinum. Guðmundur Hauksson, forstjóri, lengst til vinstri og við hlið hans er Erlendur Hjartason, stjórnarformaður.
Hluthafafundur SPRON samþykkti rétt í þessu samrunann við Kaupþing með ríflega 80% atkvæða. Talsverður hiti var á fundinum. Nú hefur enn einni hindruninni verið rutt úr vegi en bæði Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið eiga eftir að leggja blessun sína yfir samrunann. ,,Þetta eru skynsamleg skref miðað við núverandi aðstæður," sagði Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, eftir fundinn og bætti við hann væri afar ánægður með að niðurstaða væri fengin í málið. Samruninn var samþykktur með 2,94 milljarða atkvæða gegn 570 milljónum atkvæða. 3 milljónir atkvæða voru ýmist auð eða ógild. Stjórnir félaganna samþykktu fyrr í sumar samrunaáætlun um að Kaupþing yfirtaki eignir og skuldir SPRON. Samruninn var háður samþykki hluthafafundar SPRON en hluthafar höfðu í fjölmiðlum að undanförnu lýst efasemdum um samrunann og það endurgjald sem þeir fá fyrir hlut sinn í SPRON. Tíu hluthafar tóku til máls eftir að Guðmundur Hauksson, forstjóri sjóðssins, hafði lokið máli sínu og lýstu flestir yfir megnri óánægju með stjórnina og samrunaferlið. Einn hluthafa lagði til í umræðum á fundinum að verði sameiningin samþykkt yrðu óánægðir hluthafar að ráða sér lögfræðing og leita réttar síns fyrir dómstólum. Mikill fjöldi manns sótti fundinn sem hófst klukkan 17 og fór fram á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut.
Tengdar fréttir Hluthafar í SPRON kjósa um samruna við Kaupþing Mikill fjöldi manns er nú samann kominn á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut þar sem fram fer hluthafafundur SPRON. Þar á að taka fyrir tillögu um sameiningu við Kaupþing. 6. ágúst 2008 16:53 Talning hafin á hluthafafundi SPRON Talning atkvæða er hafin á hluthafafundi SPRON en eina málið á dagskrá var tillaga um sameiningu við Kaupþing. Tíu hluthafar tóku til máls eftir að Guðmundur Hauksson, framkvæmdastjóri sjóðssins, hafði lokið máli sínu og lýstu flestir yfir megnri óánægju með stjórnina og samrunaferlið. Vísir flytur nánari fréttir af fundinum þegar talning atkvæða liggur fyrir. 6. ágúst 2008 19:00 Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira
Hluthafar í SPRON kjósa um samruna við Kaupþing Mikill fjöldi manns er nú samann kominn á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut þar sem fram fer hluthafafundur SPRON. Þar á að taka fyrir tillögu um sameiningu við Kaupþing. 6. ágúst 2008 16:53
Talning hafin á hluthafafundi SPRON Talning atkvæða er hafin á hluthafafundi SPRON en eina málið á dagskrá var tillaga um sameiningu við Kaupþing. Tíu hluthafar tóku til máls eftir að Guðmundur Hauksson, framkvæmdastjóri sjóðssins, hafði lokið máli sínu og lýstu flestir yfir megnri óánægju með stjórnina og samrunaferlið. Vísir flytur nánari fréttir af fundinum þegar talning atkvæða liggur fyrir. 6. ágúst 2008 19:00