Viðskipti innlent

Grænn dagur hjá Teymi

Árni Pétur Jónsson.
Árni Pétur Jónsson.

Úrvalsvísitalan rétti úr kútnum undir lok dags og við lokun Kauphallar hafði hún hækkað um 0.24 prósent. Mest hækkuðu bréf í Teymi en þau fóru upp um 0,96 prósent. Á bakvið það eru viðskipti upp á ríflega 850 þúsund krónur. Undanfarið hefur Teymi lækkað töluvert þannig að hækkun í dag, þó lítil sé, ætti að kæta fjárfesta. Kaupþing hækkaði um 0,94 en alls hækkuðu átta félög í dag.

Sjö félög lækkuðu og þar fóru fremst í flokki færeysku félögin Föroya Banki og Atlantic Petroleum. Hið fyrrnefnda lækkaði um 3,77 prósent og hið síðara um þrjú prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×