Fjármálaráðherra segist skilja áhyggjur af háum stýrivöxtum Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. júní 2008 21:03 Árni Mathiesen „
Við erum að opna möguleika fyrir bankana. Það vita það allir að bankarnir hafa átt erfitt með lausafé og við erum að gera okkar til að hjálpa í því," segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra um gagnrýni Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra Kaupþings. Hreiðar segir í tölvupósti sem hann sendi frá sér að ákvarðanir ríkisins um að hækka hámarkslán Íbúðalánasjóðs úr 18 í 20 milljónir króna og miða lánsfjárhæð við kaupvirði eignar séu ömurlegar og feli í sér aukin umsvif ríkisins. „Ef það eru bankar sem ekki eru í vandræðum og þurfa ekki á þessu að halda að þá þurfa þeir ekki að nýta sér þessa möguleika. Við erum ekki að þvinga þetta upp á þá," segir Árni Aðspurður hvort gagnrýni Hreiðars Más sé komin til vegna gremju yfir háum stýrivöxtum segist Árni viðurkenna að háir stýrivextir séu íþyngjandi fyrir viðskiptalífið. „Við erum með sjálfstæðan Seðlabanka sem á að ákveða stýrivextina. Ég eða aðrir ráðherrar eigum ekki að gera það," segir Árni. Hann segist ekki vilja segja skoðanir sínar á stýrivöxtunum en hann geri sér vissulega grein fyrir áhrifum þeirra. Varðandi ný ríkisskuldabréf segir Árni að útgáfa þeirra sé tilkomin vegna þess að jöklabréfin sem áður hafa verið gefin út muni brátt falla á gjalddaga. „Þá er fólk úti í heimi með krónur og ef það er ekki lengur nein jöklabréfaútgáfa eða eitthvað samsvarandi mun fólk þurfa að selja þessar krónur á markaði," segir Árni. Það muni hafa neikvæð áhrif á gengið og því sé verið að gefa þessu fólki möguleika á því að fjárfesta í krónunni og taka stöðu með krónunni.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira