Vinna hafin að innleiðingu evrunnar Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. apríl 2008 00:00 Evruspeglun í Kauphöllinni Nú hillir undir að viðskipti með hlutabréf í evrum fái hafist í Kauphöll Íslands með aðkomu finnska seðlabankans að greiðslu- og uppgjörskerfi. Myndin er samsett. „
Við vinnum í þessu með Seðlabanka Finnlands og þeir hafa komið hingað í mánuðinum og fundað með bönkunum,“ segir Einar Sigurjónsson, forstjóri Nasdaq/OMX Verðbréfaskráningar Íslands. „Ferlið er farið í gang og kauphallaraðilar þurfa að standa klárir á að sækja um hjá bankanum fyrir lok maí, og upp úr því verður hægt að fara í innleiðingu og prófanir.“ Einar segist gera ráð fyrir að hægt verði að hefja viðskipti með hlutabréf í evrum í haust. „Sjálfsagt verður það samt aldrei fyrr en á síðasta ársfjórðungi, því allt tekur þetta sinn tíma.“ Upphaflega áttu viðskipti með hlutabréf í evrum að hefjast 20. september í fyrra með umskráningu bréfa Straums-Burðaráss í þá mynt. Viku fyrir þann tíma gerði Seðlabanki Íslands hins vegar athugasemdir við fyrirkomulagið og taldi lagastoð vanta til þess að lokauppgjör hvers dags færi í gegn um stórgreiðslukerfi annars banka en Seðlabanka Íslands. Á þessum tíma stóð til að Landsbanki Íslands annaðist uppgjörið til bráðabirgða þar til Seðlabanki Finnlands tæki við á þessu ári. Í Finnlandi vildu menn hafa ráðrúm til að ljúka við að innleiða nýtt stórgreiðslukerfi, svokallað Target2-uppgjörskerfi, áður en Kauphöll Íslands bættist við. „Seðlabanki Finnlands tók Target2-kerfið upp í febrúar og luku þeirri innleiðingu í mars,“ segir Einar og vonar að snurða hlaupi ekki á þráðinn á ný. Seðlabanki Íslands er eftir sem áður umsagnaraðili yfir greiðslukerfum sem hér eru í notkun, enda gætu hnökrar í þeim ógnað fjármálastöðugleika. „En þarna förum við í greiðslukerfi Seðlabanka Evrópu og allra seðlabanka sem nota evrur. Ég geri ekki ráð fyrir að miklar athugasemdir verði gerðar við það,“ segir Einar. Þá er á borði viðskiptanefndar Alþingis frumvarp til breytinga á lögum um rafræna eignaskráningu verðbréfa, en þar er tekið á túlkunaratriðum þeim sem Seðlabanki Íslands benti á síðasta haust. Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður og formaður viðskiptanefndar gerir ráð fyrir að frumvarpið verði afgreitt úr nefndinni í næstu viku og fari þá til annarrar umræðu í þinginu. „Við höfum kallað eftir umsögnum, þær hafa skilað sér að mestu og verið jákvæðar,“ segir hann og bætir við að stefnt sé að því að lagabreytingin nái fram að ganga fyrir þinglok. „Ég á ekki von á öðru en að það gerist.“
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Sjá meira