Viðskipti innlent

Hagnaður KEA nam 913 milljónum kr.

Samkvæmt ársreikningi KEA fyrir árið 2007 nam hagnaður félagsins rúmum 913 milljónum kr. eftir skatta samanborið við 287 milljóna kr. hagnað árið áður.

Bókfært eigið fé félagsins um síðustu áramót nam rúmlega 5,4 milljörðum kr. og heildareignir voru tæpir 5,8 milljarðar. Markaðsverðbréf námu tæpum 2,8 milljörðum og fjárfestingaverðbréf tæpum 2,2 milljörðum.



Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA er ánægður með afkomu síðasta árs. „Afkoma félagsins er vissulega góð miðað við hvernig markaðir þróuðust á síðasta ári. Félagið jók vægi óskráðra hlutabréfa í eignasafni sínu á árinu. Staða í innlendum skráðum hlutabréfum var minnkuð verulega á haustmánuðum og félagið lenti ekki í þeim hremmingum sem margir aðrir fjárfestar hafa glímt við undanfarna mánuði," segir Halldór í tilkynningu um uppgjörið.

"Efnahagur KEA er sterkur og þarf að vera það áfram, ekki síst í ljósi núverandi ástands á fjármálamörkuðum. Félagið er vel sett til að nýta sér þau tækifæri sem upp kunna að koma í bráð og lengd og ég er nokkuð bjartsýnn á framhaldið þó umgjörð fjármálakerfisins sé mikilli óvissu háð um þessar mundir. „






Fleiri fréttir

Sjá meira


×