Viðskipti innlent

Flestir vilja eiga FL bréf áfram

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson.

Stjórn FL Group hefur samþykkt að boða til hluthafafundar þann 9. maí næstkomandi og leggja fyrir hluthafa félagsins tillögu um skráningu félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi.

Að fengnu samþykki hluthafafundar mun FL Group gera hluthöfum tilboð

um að kaupa hluti þeirra í FL Group og greiða fyrir þá með hlutum í Glitni. Um 83% hluthafa félagins hafa þegar afsalað sér rétti til tilboðsins og verða því áfram hluthafar í FL Group, að því er segir í tilkynningu.

 

Þar segir einnig að stjórn FL Group telji að skráning félagsins úr kauphöll OMX þjóni hagsmunum félagsins og hluthöfum þess best og veiti stjórnendum félagsins færi á að leggja frekari áherslu á langtímamarkmið. „Síðustu mánuði hefur farið fram gagnger endurskoðun á fjárfestingastefnu og rekstri FL Group en félagið leggur nú áherslu á stöðugar langtímafjárfestingar og fjárfestingar í óskráðum félögum. Afskráning mun veita framkvæmda¬stjórn félagsins sveigjanleika til að

horfa til lengri tíma í uppbyggingu félagsins og minnka kostnað og umsvif sem fylgja því að vera skráð félag. "

 

Tveir þriðju hlutahafa þurfa að samþykkja til þess að afskráningarferlið geti hafist. Að fengnu samþykki hluthafafundar þann 9. maí mun hluthöfum standa til boða að halda hlutum sínum í FL Group sem verður óskráð félag eða selja hluti sína í FL Group og fá greitt fyrir með hlutum í Glitni banka.

„Kaupverð hluta í FL Group í tilboði til hluthafa verður 6,68 á hlut sem var

meðalgengi FL Group í aprílmánuði 2008 og gengi á hlutum í Glitni verður 17,05 á hlut sem var lokagengi Glitnis þann 30. apríl 2008. Skiptihlutfallið í tilboði til hluthafa verður því 0,3918 hlutir í Glitni banka fyrir hvern hlut í

FL Group," segir einnig í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að FL Group hafi gert samkomulag við Jötunn Holding ehf. um rétt FL Group til kaupa á hlutum Jötuns í Glitni sem nota skal í viðskiptunum. Þessi viðskipti hafi því engin áhrif á 31,97% eignarhlut FL Group í Glitni eða stöðu Glitnis sem einni af kjarnafjárfestingum FL Group.

Hluthöfum, sem skráðir eru í hluthafaskrá félagsins í lok dags 8. maí, gefst færi á að skipta á bréfum sín í FL Group fyrir bréf í Glitni á tímabilinu frá 9. maí til kl. 16.00 þann 21. maí 2008. Stefnt er að því að ljúka afskráningarferlinu sem fyrst í kjölfar þess að tilboðið rennur út. Glitnir banki hefur umsjón með viðskiptunum og eftir 9. maí geta hluthafar fengið frekari upplýsingar og aðstoð í síma 440 3725 og á vefsíðu bankans.

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group segir að afskráning FL Group muni veita „stjórnendum félagsins tækifæri til að leggja meiri áherslu á langtímamarkmið og minnkar einnig áhrif vegna skammtímamarkmiða sem tengjast hlutabréfamarkaði. Sú staðreynd að um 83% hluthafa félagsins hafa þegar ákveðið að halda hlut sínum í FL Group að afskráningu lokinni sýnir vel þá trú sem þessir aðilar hafa á FL Group, stefnu stjórnar og framkvæmdastjórnar. Þeir hluthafar sem kjósa fremur að eiga hlut í skráðu félagi hafa möguleika á að fjárfesta í Glitni, einni af kjarnafjárfestingum FL Group, sem við getum óhikað mælt með."

„Síðastliðna mánuði hefur verið unnið markvisst að endurskipulagningu fjárfestingasafns og reksturs FL Group, með það markmið að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og veita því stöðugleika," segir forstjóri félagsins, Jón Sigurðsson. „Skráning félagsins af markaði er rökrétt skref í áframhaldandi endurskipulagningu félagsins. Við teljum að sem óskráð félag muni FL Group fá aukið svigrúm og fleiri tækifæri til að efla rekstur félagsins og kjarnafjárfestingar félagsins á banka-, trygginga- og fasteignamarkaði ásamt því að styðja við fjárfestingaverkefni í óskráðum félögum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×