Fjölskyldur í forgang 1. nóvember 2008 05:30 Verð á nauðsynjum hækkar, launin lækka og atvinnuleysi knýr dyra. Langtímalán þenjast út um leið og verðgildi húsnæðis hríðfellur. Helmings hækkun stýrivaxta gerir horfurnar enn dekkri. Þetta reikningsdæmi gengur ekki upp og ef ekkert verður að gert verða íbúðalán fljótlega komin langt upp fyrir íbúðaverð. Það er engin lausn að lengja í þessum lánum. Fólk hneppir sig ekki sjálfviljugt í ævilangan þrældóm til að borga af himinháum lánum með veði í verðlítilli eða óseljanlegri íbúð. Ungt fólk sem skuldar hlutfallslega mest og keypti í þenslu undanfarinna fimm ára, mun varla hafa annan kost í stöðunni en að lýsa sig gjaldþrota. Nóg verður samt fyrir þetta fólk að borga af skuldum ríkisins, flýi það ekki land. Gjaldþrotum fjölskyldna mun fylgja enn meiri lækkun á verði fasteigna og mikil útlánatöp hjá lánveitendum; lífeyrissjóðum og ríkinu. Því hin veðsetta eign mun aðeins duga upp í hluta útlána. Einnig má spyrja hvort verðtrygging við þessar aðstæður sé ekki að tryggja rangt verðgildi krónunnar, þann kaupmátt sem byggður var á sandi og hefur nú hrunið. Er eðlilegt að þeim kaupmætti sé viðhaldið í hluta hagkerfisins? Er ekki skárra að frysta verðtryggingu lána tímabundið meðan gengisleiðréttingin á sér stað? Þannig rýrna útlánin vissulega, en þannig halda lánveitendur skuldurunum og þaki yfir þjóðinni. Hægt er að frysta verðtrygginguna við 4% sem eru yfirlýst þolmörk samkvæmt verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Annar möguleiki er að setja lög um að verðtrygging uppreiknist ekki sjálfkrafa um mánaðamót. Staðan verði svo metin yfir þriggja mánaða tímabil. Þá sjá menn betur hvert stefnir og geta betur fyrirséð afleiðingar verðtryggingar. Þá verður hægt að ákveða hvort og að hve miklu leyti skynsamlegt er að taka tillit til verðtryggingar. Þriðji möguleikinn væri að breyta forsendum verðtryggingar: minnka vægi innfluttra vara og notast ekki við neyslukannanir úr góðærinu til að reikna út verðbólguna. Það verður að grípa til aðgerða núna áður en fjöldagjaldþrot heimila er staðreynd og áður en verðtryggingin nær að magna upp verðbólgubálið. Höfundur er borgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Verð á nauðsynjum hækkar, launin lækka og atvinnuleysi knýr dyra. Langtímalán þenjast út um leið og verðgildi húsnæðis hríðfellur. Helmings hækkun stýrivaxta gerir horfurnar enn dekkri. Þetta reikningsdæmi gengur ekki upp og ef ekkert verður að gert verða íbúðalán fljótlega komin langt upp fyrir íbúðaverð. Það er engin lausn að lengja í þessum lánum. Fólk hneppir sig ekki sjálfviljugt í ævilangan þrældóm til að borga af himinháum lánum með veði í verðlítilli eða óseljanlegri íbúð. Ungt fólk sem skuldar hlutfallslega mest og keypti í þenslu undanfarinna fimm ára, mun varla hafa annan kost í stöðunni en að lýsa sig gjaldþrota. Nóg verður samt fyrir þetta fólk að borga af skuldum ríkisins, flýi það ekki land. Gjaldþrotum fjölskyldna mun fylgja enn meiri lækkun á verði fasteigna og mikil útlánatöp hjá lánveitendum; lífeyrissjóðum og ríkinu. Því hin veðsetta eign mun aðeins duga upp í hluta útlána. Einnig má spyrja hvort verðtrygging við þessar aðstæður sé ekki að tryggja rangt verðgildi krónunnar, þann kaupmátt sem byggður var á sandi og hefur nú hrunið. Er eðlilegt að þeim kaupmætti sé viðhaldið í hluta hagkerfisins? Er ekki skárra að frysta verðtryggingu lána tímabundið meðan gengisleiðréttingin á sér stað? Þannig rýrna útlánin vissulega, en þannig halda lánveitendur skuldurunum og þaki yfir þjóðinni. Hægt er að frysta verðtrygginguna við 4% sem eru yfirlýst þolmörk samkvæmt verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Annar möguleiki er að setja lög um að verðtrygging uppreiknist ekki sjálfkrafa um mánaðamót. Staðan verði svo metin yfir þriggja mánaða tímabil. Þá sjá menn betur hvert stefnir og geta betur fyrirséð afleiðingar verðtryggingar. Þá verður hægt að ákveða hvort og að hve miklu leyti skynsamlegt er að taka tillit til verðtryggingar. Þriðji möguleikinn væri að breyta forsendum verðtryggingar: minnka vægi innfluttra vara og notast ekki við neyslukannanir úr góðærinu til að reikna út verðbólguna. Það verður að grípa til aðgerða núna áður en fjöldagjaldþrot heimila er staðreynd og áður en verðtryggingin nær að magna upp verðbólgubálið. Höfundur er borgarfulltrúi.
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun