Viðskipti innlent

Setja 180 milljónir í Nýsköpunarmiðstöð

Össur Skarphéðinsson mun undirrita samninginn í dag.
Össur Skarphéðinsson mun undirrita samninginn í dag.

Nýsköpunarmiðstöð og iðnaðarráðuneytið undirrita samkomulag í Vestmannaeyjum um framkvæmd verkefna byggðaáætlunar 2008-2009.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og iðnaðarráðuneytið hafa gert með sér samkomulag um framkvæmd verkefna byggðaáætlunar 2008-2009 sem unnin verða á starfsstöðvum Nýsköpunarmiðstöðvar í Reykjavík, Vestmannaeyjum, Ísafirði og Höfn í Hornafirði.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð nú í morgun.

„Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar munu undirrita samninginn í Klettshelli í Vestmannaeyjum á goslokahátíð laugardaginn 5. júlí.

Um er að ræða eftirfarandi verkefni:

1.Þróunarverkefni í ferðaþjónustu 100 m.kr.

2.Verkefni unnin út frá Ísafirði 40 m.kr.

3.Verkefni unnin út frá Höfn 20 m.kr.

4.Verkefni í Vestmannaeyjum 20 m.kr.

5.Önnur verkefni

Samningurinn markar tímamót m.a. fyrir starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum sem var opnuð í júní 2008.

Samningurinn veitir fjármagn í tvö verkefni í Vestmannaeyjum, þekkingarsetur á sviði frumgerðarsmíði (svokallaða Fab Lab - smiðju) í samvinnu við MIT háskólann og rannsókna- og þróunarverkefni um hagnýtingu á varmadælum fyrir fjarvarmaveitu Vestmannaeyja, en slíkar varmadælur gætu haft umtalsverðan orkusparnað í för með sér."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×