Þessir eiga Baug, Styrk og Stoðir 9. apríl 2008 17:11 Jón Ásgeir Jóhannesson er starfandi stjórnarformaður Baugs Group.
Í kjölfar þess að Baugur Group seldi fjölmiðla- tækni- og fjárfestingahluta sína yfir til tveggja systurfélaga, Stoðir Invest og Styrks Invest hafa margir velt því fyrir sér hverjir séu raunverulegir eigendur þessara þriggja félaga. Vísir varpar ljósi á málið. Baugur Group er óskráð félag sem gerir það verkum að upplýsingar um það liggja ekki auðveldlega á lausu. Eftir því sem Vísir kemst næst er eignarhald félagsins að stærstum hluta á höndum fárra aðila sem ráða yfir 98% af bréfum félagsins. Gaumur, sem er eignarhaldsfélag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, foreldra hans Jóhannesar Jónssonar og Ásu Karenar Ásgeirsdóttur og systur hans Kristínar, á stærstan hluta eða um 65%. Bagu, sem er í eigu Hreins Loftssonar, stjórnarmanns í Baugi, og barna Péturs Björnssonar í Vífilfelli, er næststærsti hluthafi Baugs Group og á um 10% hlut. Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, á um 8% hlut í gegnum eignarhaldsfélag sitt ISP og Don McCarthy og Kevin Stanford eiga rúmlega 7% hvor. Smelltu á myndina til að stækka hana Baugur seldi fjölmiðla- og tæknihluta sinn sem samanstendur af skráðu félögunum 365 og Teymi, Apple-fyrirtækinu Humac, 51% í 365 Media sem á Nyhedsavisen. Hjálm sem á DV, Birtíng og bókaútgáfuna Skugga, Saga Film og European Film Group, fréttaveituna Newsedge sem og annarra minni fjárfestinga í ýmsum félögum. Kaupandinn er Stoðir Invest, sem samanstendur samkvæmt fréttatilkynningu af nokkrum stærstu hluthöfum Baugs Group. Heimildir Vísis herma að aðeins þrír stærstu hluthafarnir Gaumur, Bagu og ISP hafi áhuga á fjölmiðlarekstri og munu þau skipta eignarhaldi á Stoðum Invest í samræmi við eignarhlut þeirra í Baugi. Heimildir Vísis herma að búið sé að skipa stjórn félagsins. Jón Ásgeir Jóhannesson verður stjórnarformaður en hann er jafnframt stjórnarformaður 365. Með honum í stjórn verða systir hans Kristín og Hreinn Loftsson sem er jafnframt stjórnarformaður Hjálms. Baugur seldi líka hlut sinn í FL Group til Styrks Invest. Stærsti hluthafi þar er Kaldbakur, sem er í eigu útgerðarfélagsins Samherja. Forstjóri þess er Þorsteinn Már Baldvinsson sem er jafnframt stjórnarformaður í Glitni sem er stærsta og verðmætasta eign FL Group í dag. Auk Kaldbaks eru eigendur Styrks Gaumur, Ingibjörg Pálmasdóttir og Hagar, sem er í eigu Baugs. Samkvæmt heimildum Vísis er ekki enn búið að skipa stjórn í Styrki en búist er við að það verði gert á næstu dögum. Líklegt þykir að Þorsteinn Már verði stjórnarformaður félagsins.Á skýringarmyndinni hér að ofan má sjá hvernig félögin þrjú tengjast innbyrðis.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira