Ronaldo sá besti í heimi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. apríl 2008 16:10 Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid. Nordic Photos / Getty Images
Bernd Schuster, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir að Cristiano Ronaldo sé besti knattspyrnumaður heimsins í dag. Ronaldo skoraði sitt 36. mark á tímabilinu er hann skoraði annað marka Manchester United í 2-0 sigri á Roma í Meistaradeild Evrópu í gær. Schuster segir að Ronaldo sé nú betri en Brasilíumaðurinn Kaka sem var kjörinn knattspyrnumaður ársins af FIFA og France Football í fyrra. „Ronaldo hefur þegar farið fram úr Kaka sem hefur verið í lægð undanfarið," sagði Schuster. „Sem stendur er Cristiano Ronaldo besti knattspyrnumaður heimsins." Ronaldo var í þriðja sæti á eftir Lionel Messi í kjöri FIFA á knattspyrnumanni ársins. Schuster bætti við að hann hefði vitanlega ekkert á móti því að fá Ronaldo til liðs við Real Madrid. „Hann er skærasta stjarna Old Trafford og þar til United vinnur Meistaradeildina og annan enskan meistaratitil munu þeir ekki sleppa honum," sagði Schuster. „En ég gæti vel trúað því að hann komi til með að spila með Real Madrid eftir nokkur ár." Schuster gaf einnig í skyn að Didier Drogba gæti verið á leið til félagsins. „Drogba og Luis Fabiano hjá Sevilla eru mjög góðir leikmenn. Madrid leggur metnað sinn í að fá þá bestu til sín."
Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira