Viðskipti innlent

Fullyrt að bankarnir hafi hagnast um 155 milljarða á gengishruni

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings.
Áætlað er að íslensku bankarnir hafi hagnast um 155 milljarða íslenskra króna á gengisfalli íslenskru krónunnar á undanförnum vikum, eftir því sem fullyrt er á vefútgáfu breska blaðsins The Times.

Blaðið segir að verðgildi íslensku krónunnar hafi fallið um 30% frá því um áramótin og að menn óttist efnahagsástandið hér á landi og framtíð íslensks fjármálalífs. Hins vegar hafi stóru íslensku bankarnir gert ráð fyrir því í tvö ár að gengi krónunnar myndi lækka og því hafi þeir tekið stöðu gegn krónunni.

Þá hafi bankarnir einnig átt mikil viðskipti við evrópska fjárfesta, sem hafi keypt íslenskar krónur til að hagnast á háum vöxtum á Íslandi. Þetta hafi skilað bönkunum 155 milljarða króna tekjum frá ársbyrjun.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×