Stjórn Spron segist hafa starfað í góðri trú 28. mars 2008 16:43 Spron
Stjórn SPRON hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar fréttar Fréttablaðsins síðan í gær sem fjallaði um viðskipti stjórnarmanna með bréf í félaginu. Þar segir meðal annars að stjórnin hafi ekki getað ályktað annað en að birting upplýsinga um viðskipti innherja væri óheimil. Í tilkynningunni segir: Fyrir breytingu SPRON í hlutafélag starfaði tilboðsmarkaður með stofnfjárbréf á grundvelli reglna sem stjórn félagsins setti að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins árið 2004. Í drögum að þessum reglum var ákvæði um birtingu upplýsinga um viðskipti innherja með stofnfjárbréf. Í umsögn frá Fjármálaeftirlitinu kom fram sú afstaða að birting slíkra upplýsinga væri óheimil. Í kjölfarið voru ný drög að reglum send til Fjármálaeftirlitsins þar sem ákvæði um birtingu upplýsinga um innherjaviðskipti var fellt út og reglurnar gefnar út þannig breyttar. Því er ljóst að:· Stjórn SPRON gat ekki ályktað annað en að birting upplýsinga um viðskipti innherja væri óheimil. · Stjórn SPRON hefur starfað eftir þessum reglum í góðri trú frá 2004 án athugasemda · Vilji stjórnar SPRON stóð alltaf til þess að birta upplýsingar um innherjaviðskipti með formlegum hætti Kjarni máls er að sú umræða sem spunnist hefur um viðskipti stjórnarmanna fyrir breytingu SPRON í hlutafélag á rætur að rekja til þess að verð hlutabréfa í SPRON hefur lækkað frá því að félagið var skráð í kauphöll. Hefur verið látið að því liggja að stjórn SPRON hafi búið yfir innherjaupplýsingum sem skýri þá lækkun og þar með að stjórnarmenn hafi starfað af óheilindum. Stjórn SPRON hefur ítrekað bent á að engar innherjaupplýsingar lágu fyrir þegar umrædd viðskipti áttu sér stað og ítrekar það aftur nú. Þau gögn sem vísað hefur verið til í umræðunni má finna á heimasíðu SPRON, www.spron.is, þar sem hluthafar SPRON og aðrir geta kynnt sér málið. Stjórn SPRON hefur greint frá málum eins ítarlega og henni er unnt. Það er von stjórnarinnar að hluthafar sjái á þeim gögnum sem fyrir liggja að stjórnin hefur starfað í góðri trú.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira