Farþegar geta innritað sig á netinu 9. mars 2008 10:20
Icelandair býður viðskiptavinum sínum að innrita sig á netinu í öll flug frá landinu frá og með deginum í dag. Farþegar geta með því að fara inn á icelandair.is innritað sig í flug sitt um það bil sólarhring fyrir flug, eða með 22 klukkustunda fyrirvara. „Mikill fjöldi fólks er á leið til útlanda nú fyrir páskana og ljóst að margir munu nýta sér þessa nýju þjónustu," segir í tilkynningu frá Icelandair. „Innritunin er mjög einföld; skráð er inn eftirnafn farþega og bókunarnúmer og þá býðst viðskiptavinum að velja sér sæti í yfirlitsmynd af flugvélinni. Farþeginn p rentar síðan út brottfararspjald með strikamerkingu heima hjá sér. Allt ferlið tekur innan við eina mínútu. Þegar komið er í Leifsstöð geta farþegar gengið beint í öryggisleit og sýnt þar brottfararspjaldið. Þeir sem ferðast með farangur fara í sjálfsafgreiðslustöðvarnar í innritunarsalnum (kiosk), sem les strikamerkinguna á brottfararspjaldinu og prentar út farangursmiða. Farangurinn er afhentur starfsmanni á innritunarborði fyrir vefinnritun og sjálfsafgreiðslu." „Netinnritunin er liður í að auka þægindi farþega og stytta biðtíma í Leifsstöð. Þróunin er sú að langflestir kaupa rafræna farseðla á netinu og netinnritunin er eðlilegt framhald á því. Þessi þjónusta hefur verið í tæknilegum undirbúningi hjá okkur um tíma og við lögðum áherslu á að byrja hérna á Íslandi, þar sem flestir okkar farþega eiga leið um. Við munum svo innan tíðar bjóða upp á netinnritun frá áfangastöðum okkar erlendis", segir Gunnar Már Sigurfinnson, framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs Icelandair. Farþegum Icelandair býðst einnig sem fyrr sjálfsinnritun í 18 "kiosk" stöðvum í innritunarsalnum í Leifsstöð auk þess sem sjálfsinnritunarstöðvar eru á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu. Fyrstu sjálfsinnritunarstöðvarnar voru teknar í notkun fyrir rúmlega einu og hálfu ári en með þeim gefst farþegum Icelandair kostur á að innrita sig til áfangastaða Icelandair með allan hefðbundinn farangur og velja sér sæti í flugvélinni.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira