Dæmdur til að greiða fimm milljónir í þóknun fyrir hlutabréfakaup 7. mars 2008 21:07 Pálmi Haraldsson.
Pálmi Haraldsson, oftast kenndur við eignarhaldsfélagið Fons, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur til að greiða Sigurði Braga Guðmundssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Plastprents, fimm milljónir króna fyrir milligöngu um kaup á um fimmtungshlut í Plastprenti árið 2004. Sigurður Bragi krafðis hins vegar nærri 165 milljóna króna. Samkvæmt stefnu Sigurðar Braga á Gunnar Karl, bróðir hans og forstjóri Skeljungs, hafa borið honum þau tíðindi frá Pálma að ef Sigurður Bragi gæti hlutast til um sölu á hlut fjölskyldu Hauks Eggertssonar í Plastprenti, um 20 prósentum, myndi Sigurður Bragi fá hagnaðinn af þeim bréfum við endursölu. Skildi Sigurður Bragi það þannig að rætt væri um endursölu á ráðandi hlut í Plastprenti og að endurgjald til hans mundi þá nema mismun á kaupverði og söluverði þess 20 prósenta hlutar sem hann átti að hafa milligöngu um að kaupa. Eftir um hálfs mánaðar viðræður tókust samningar um kaup hlutanna fyrir um 160 milljónir króna. Í stefnunni segir svo að Pálmi hafi selt Íslandsbanka hlutinn í ágúst 2005 á um 324 milljónir króna. Mismuninn, 164 milljónir króna, taldi Sigurður Bragi sig eiga að fá fyrir milligönguna. Pálmi bar því við að hann hefði aldrei persónulega átt neinn hlut í Plastprenti. Skeljungur hf. hafi átt í Plastprenti þegar félag, sem Pálmi var í forsvari fyrir, hafi keypt Skeljung. Þeir hlutir hafi síðan verið seldir Fons sem Pálmi ætti ásamt öðrum. Hvorki Pálmi sjálfur né nokkur annar, sem hafi haft umboð hans, hafi lofað Sigurði Braga hagnaðinum af endursölu fimmtungshlutarins í Plastprenti. Í málinu var lagður fram tölvupóstur þar sem Pálmi á að hafa boðið Sigurði Braga fimm milljónir fyrir milligönguna sem hann nefndi dagsvinnu. Dómurinn komst að því að Pálmi hefði beðið Sigurð Braga um að hafa milligöngu um kaupin. Það hafi orðið samkomulag um þóknun en hins vegar skorti sannanir fyrir því að Sigurður Bragi hafi átt að fá hagnaðinn af sölu hlutarins í Plastprenti. Framburður Gunnars Karls Guðmundssonar þar um hefði takmarkað vægi þar sem hann væri bróðir Sigurðar Braga. Út frá gögnum málsins yrði ekki fundinn annar og réttari mælikvarði á þóknun Sigurðar Braga en þær fimm milljónir sem Pálmi Haraldsson hefði minnst á í tölvupósti.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Frá Wise til VÍS Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira