Hagnaður Landsvirkjunar jókst um 17,5 milljarða 7. mars 2008 16:36 MYND/Teitur
Hagnaður Landsvirkjunar á síðasta ári nam 28,5 milljörðum króna samkvæmt ársreikningi sem samþykktur var á fundi stjórnar fyrirtækisins í dag. Jókst hagnaðurinn um 17,5 milljarða króna á milli ára. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að heildareignir félagsins hafi í lok síðasta árs numið nærri 320 milljörðum króna og eigið fé nam nærri hundrað milljörðum króna. Það jókst um rúma 28 milljarða á árinu.Rekstrartekjur numu nærri 23 milljörðum króna og jukust um nærri tvo milljarða milli ára. Auknar tekjur má að verulegu leyti rekja til sölu á rafmagni til Fjarðaáls sem hófst á árinu. Rekstrarkostnaður án afskrifta nam um 6,6 milljörðum króna en var um 6,4 milljarðar í fyrra.Ársreikningur Landsvirkjunar er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtækið gerir ársreikning sinn með þeim hætti.Samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum er fyrirtækinu skylt að ákvarða starfrækslugjaldmiðil sinn og er niðurstaðan sú að Bandaríkjadalur verður ráðandi mynt fyrirtækisins frá og með árinu 2008. Árið 2007 er því síðasta árið sem íslenska krónan er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar.Horfur um rekstur Landsvirkjunar eru sagðar góðar fyrir þetta ár. Fljótsdalsstöð var tekin í notkun á árinu 2007 og munu tekjur af raforkusölu til stóriðju auka heildartekjur fyrirtækisins umtalsvert. Gengisþróun og gangvirðisbreytingar á innbyggðum afleiðum mun þó eftir sem áður ráða miklu um afkomu ársins, segir í tilkynningu Landsvirkjunar.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira