Neyðarlínan semur við Vodafone 7. mars 2008 12:24 Árni Pétur Jónsson forstjóri Vodafone, Kristinn Ólafsson framkvæmdastjóri Landsbjargar, Dagný Halldórssdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar og Kristján L. Möller samgönguráðherra.
Neyðarlínan hefur samið við Vodafone um að fyrirtækið veiti Neyðarlínunni heildarfjarskiptaþjónustu næstu þrjú árin. Samningur þess efnis var handsalaður á hálendi Íslands, samhliða því að samgönguráðherra opnaði fyrir GSM þjónustu Vodafone á Kili. Dagný Halldórsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir samninginn við Vodafone tryggja bestu mögulegu þjónustu. "Okkar fjarskiptaþarfir eru margvíslegar og eftir ítarlega úttekt er það niðurstaðan, að hagsmunir okkar og þeirra sem nýta sér þjónustu Tetra kerfsins séu best tryggðir með þessum nýja samningi." Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone, segir það mikla viðurkenningu að Neyðarlínan hafi valið að færa sín símaviðskipti til Vodafone. "Öryggismál eru okkur mjög hugleikin og því er það sérstakt ánægjuefni að Neyðarlínan skuli vera komin í viðskipti við okkur. Við höfum lagt ríka áherslu á áreiðanleika þjónustunnar og bæði tæknilegir mælikvarðar og mælingar á ánægju viðskiptavina sýna að við höfum náð góðum árangri." Vodafone hefur á undanförnum mánuðum unnið að uppbyggingu GSM þjónustu á svæðum þar sem slík þjónusta hefur ekki áður verið í boði, m.a. á hálendi Íslands. Þannig hefur Vodafone tryggt viðskiptavinum sínum GSM samband víðar á landinu en aðrir. Þó skal tekið fram, að þótt viðskiptavinir Vodafone geti einir nýtt sér þjónustuna til almennra nota, þá geta allir GSM notendur hringt í neyðarnúmerið 112 og óskað eftir hjálp þar sem GSM samband er til staðar. Neyðarlínan veitir almenningi alhliða neyðarþjónustu í neyðarnúmerinu 112, auk þess sem hún hefur annast rekstur stjórnstöðvar Securitas um árabil. Neyðarlínan annast rekstur Vakstövar Siglinga, sem áður var tilkynningarskyldan og fjarskiptastöðin í Gufunesi. Einnig annast Neyðarlínan rekstur öryggisfjarskiptakerfisins Tetra. Vodafone á Íslandi er fjarskiptafyrirtæki sem veitir heildarþjónustu á sviði fjarskipta. Starfsmenn Vodafone eru um 380 talsins og þjónusta viðskiptavini á heimilum og hjá fyrirtækjum um land allt með farsíma, síma, nettengingar og sjónvarp. GSM þjónusta Vodafone nær til 99% landsmanna.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira