Eduardo: Taylor heimsótti mig ekki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. mars 2008 11:03 Eduardo er hér borinn af velli eftir tæklinguna ljótu. Nordic Photos / Getty Images
Eduardo segir að það sé rangt sem komið hafi fram í enskum fjölmiðlum að Martin Taylor hafi heimsótt sig á sjúkrahúsið eftir að hann fótbrotnaði illa. Taylor, leikmaður Birmingham, braut á Eduardo þannig að ökkli hans afmyndaðist afar illa í leik liðsins gegn Arsenal fyrir tæpum tveimur vikum. Taylor var sagður niðurbrotinn maður eftir atvikið og að hann hefði heimsótt Eduardo næsta dag á sjúkrahúsið þar sem hann dvaldi. „Það kom fram í öllum blöðum að Taylor hefði heimsótt mig og beðið afsökunar. Ég verð að leggja áherslu á að það gerðist aldrei. Það er skáldskapur." „Viðtalið sem birtist við mig er líka skáldað upp. Það átti sér ekki heldur stað," sagði Eduardo í samtali við króatíska sjónvarpsstöð í gær. „Ágangur fjölmiðla var of mikill. Ég þurfti nauðsynlega að fá frið til að jafna mig." Eduardo lýsti augnablikunum eftir að tæklingin átti sér stað í viðtalinu í gær. „Ég fótbrotnaði vegna þess að einmitt þá var ég með allan minn þunga á þeim fæti. Ef fóturinn hefði verið í lausu lofti hefði þetta bara verið aukaspyrna." „Fyrst fann ég ekki fyrir neinum sársauka. En þegar ég sá hvernig fóturinn var fékk ég áfall. Gilberto kom til mín og útskýrði fyrir mér á portúgölsku hvað sjúkraþjálfararnir væru að gera. En ég var í svo miklu áfalli að ég skildi ekkert hvað hann var að segja." Það skal tekið fram að Eduardo fæddist í Brasilíu en er króatískur ríkisborgari og landsliðsmaður.
Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira