Enski boltinn

Phillips leikmaður ársins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kevin Phillips, leikmaður WBA.
Kevin Phillips, leikmaður WBA. Nordic Photos / Getty Images

Kevin Phillips, leikmaður West Brom, var í gærkvöldi útnefndur leikmaður ársins í ensku B-deildinni en þá fór fram verðlaunahátíð neðri deildanna í Englandi.

Phillips er markahæsti leikmaður deildarinnar á tímabilinu en hann hefur þegar skorað sextán mörk í deildinni.

Jermaine Beckford, Leeds, var valinn besti leikmaður C-deildarinnar auk þess sem hann hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir mark ársins.

Besti leikmaður D-deildarinnar var valinn Keith Andrew, leikmaður MK Dons.

Michael Kightly, Wolves, var valinn besti ungi leikmaðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×