Sterling ræður nýjan framkvæmdarstjóra 3. mars 2008 11:11 Christian Gormsen
Sterling Airlines dótturfélag Northern Travel Holding hf hefur ráðið Christian Gormsen sem framkvæmdastjóra rekstrarsviðs (COO) og tekur hann við starfinu af John Robertson. Christian mun leiða flugvéla-, áhafna- og viðhaldsdeildir félagsins og taka stöðu í framkvæmdastjórn félagsins. Christian hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá GN ReSound A/S undanfarin fimm ár og hefur meðal annars haft umsjón með rekstrarsviði, markaðssviði og þróunarsviði félagsins. Hann starfaði hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company í þrjú ár sem stjórnunarráðgjafi og þar áður vann hann hjá Carnegie Bank. "Christian kemur til Sterling með mikla þekkingu og yfirsýn á innviðum fyrirtækja og fyrirtækjarekstri. Hann hefur sýnt að hann býr yfir góðu innsæi varðandi stefnumörkun og rekstur fyrirtækja. Þessir þættir eru mikilvægir framtíðarsýn félagsins um að færa félagið á næsta vaxtarstig og festa það enn frekar í sessi sem gæða flugfélag. Ég þekki Christian persónulega frá fyrrum samstarfi okkar hjá McKinsey & Company en reynsla hans þaðan styrkir trú mína enn frekar á getu hans til að hraða þróun Sterling enn frekar" sagði stjórnarformaður Sterling Airlines, Þorsteinn Örn Guðmundsson. "Sterling er öruggt og sveigjanlegt félag sem hefur, á velheppnaðan hátt, breytt ferðaiðnaðinum í Scandinavíu . Ég hlakka til að vinna með yfirstjórn og starfsmönnum Sterling að því að auka veg félagsins enn frekar og aðstoða við að leiða það á næsta stig vaxtar og velgengni á einum mest spennandi markaði í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi" Sagði Christian. Christian Gormsen útskrifaðist með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Copenhagen Business School í Danmörku. Floti Sterling Airlines samanstendur af 29 Boeing 737 flugvélum sem fljúga á yfir 100 leiðum. Hjá félaginu eru um 1200 starfsmenn sem allir leggja áherslu á að veita viðskiptavinum áreiðanlega og sveigjanlega þjónustu á sanngjörnu verði.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira