Geir vill að bankarnir hægi á vexti sínum 2. mars 2008 23:21 Geir Haarde
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir í viðtali við Financial Times að hann telji að íslensku bankarnir þurfi að hægja á vexti sínum til þess að auka tiltrú alþjóðafjárfesta á íslenska hagkerfinu. Í grein Financial Times er greint frá því að tiltrú á íslensku bönkunum hafi minnkað að undanförnu vegna of mikils skuldatryggingaálags. „Bankarnir hafa verið í mikilli útrás að undanförnu og ef til vill er kominn tími til að þeir endurskoði þá stefnu sína," er haft eftir Geir á vefútgáfu Financial Times. Þá segir blaðið frá því að Moody´s hafi lækkað lánshæfismat Kaupþings, Landsbankans og Glitnis í síðustu viku. Einnig er sagt frá því að bankarnir hafi verið að endurskoða rekstur sinn að undanförnu og meðal annars hafi Kaupþing hætt við kaupin á hollenska bankanum NIBC. Í greininni kemur jafnframt fram að skuldatryggingaálag íslensku bankanna hafi hækkað gríðarlega á undanförnum mánuðum og haft er eftir Geir að hann telji þessa hækkun hafa orðið án nokkurrar réttlætingar. „Ef þú hefur áhyggjur af því að fá ekki endurgreitt, sem er það sem traust snýst um, þá ættirðu ekki að hafa áhyggjur af íslensku bönkunum, hvað þá íslenska ríkinu," er haft eftir Geir. Þá segist Geir ætla að fara í sérstakt átak í þessum mánuði til þess að auka traust alþjóðafjárfesta á íslensku efnahagslífi.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Frá Wise til VÍS Viðskipti innlent Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira