Ekki með starfslokasamning heldur tveggja ára uppsagnarfrest 27. febrúar 2008 09:28 Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelanndair.
Yfirststjórn Icelandair hefur óskað eftir að koma að leiðréttingu vegna fréttar Vísis um starfslok Jóns Karls Helgasonar, fyrrverandi forstjóra félagsins. Vísir greindi frá því að Jón Karl hefði fengið 60 milljónir króna í starfslokasamning þegar hann hætti. Þetta mun ekki vera rétt, heldur var hann með tveggja ára uppsagnarfrest sem hann fékk borgaðan þegar hann lét af störfum. Yfirlýsingin frá Icelandair fylgir hér í heild sinni: „Ágæta ritstjórn. Vegna fréttar á vísir.is þess efnis að Jón Karl Ólafsson fyrrum forstjóri Icelandair Group hf hafi fengið starfslokasamning við félagið upp á rúmar 60 m.kr vill undirritaður taka fram eftirfarandi. Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair Group hf sem lét af störfum um s.l. áramót fékk engar greiðslur í tengslum við starfslok sín hjá félaginu. Skv. ráðningarsamningi sem gerður var við Jón áður en núverandi stjórn kom að félaginu á Jón eins og aðrir launþegar rétt á launum á uppsagnarfresti. Uppsagnarfrestur Jóns skv. samningnum nam 24 mánuðum. Þar sem Jón vinnur ekki út uppsagnarfrestinn að ósk félagsins er í ársreikningi vegna ársins 2007 gjaldfærsla sem nemur fjárhæð sem svarar til þeirra launa sem ber að greiða fyrrum forstjóra næstu 24 mánuði að viðbættum launatengdum gjöldum. Stjórn félagsins ítrekar að hún hefur ekki og hyggst ekki gera samninga um sérstakar greiðslur við starfslok einstakra starfsmanna. Þetta er áréttað þar sem í umfjöllun fjölmiðla og manna á milli er oft ruglað saman hugtakinu "starfslokagreiðsla" og greiðslu launa á umsömdum uppsagnarfresti. Virðingarfyllst Gunnlaguur M. Sigmundsson Stjórnarformaður Icelandair Group hf"
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira