Gámaþjónustan í útrás í Lettlandi 22. febrúar 2008 16:03 Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar.
Gámaþjónustan hefur náð töluverðri fótfestu á markaði í Lettlandi. Fyrirtækið hefur nú á einu ári keypt nokkur fyrirtæki á sviði sorphreinsunar og endurvinnslu og um mánaðarmótin síðustu bættist enn eitt í safnið, SIA Eko Kurzeme. Sveinn Hanneson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar, segir í samtali við Vísi að í Lettlandi felist tækifæri þar sem landið þarf að uppfylla harðari kröfur í þessum efnum nú þegar Lettar hafa gengið í Evrópusambandið. „Við sjáum þarna ákveðin tækifæri sem liggja í því að þeir eru aðilar að ESB og þurfa að uppfylla kröfur í samræmi við það," segir Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar. „Lettar eru hins vegar eru langt á eftir okkur í flokkun á sorpi og það má kannski segja að þeir séu á svipuðu róli og við Íslendingar vorum á fyrir 15 til 20 árum. Við sjáum því tækifæri þarna til að nýta okkur þá þekkingu og tækni sem við höfum verið að byggja upp hér á landi í þessum bransa." Sveinn segir að fyrirtækið hafi þann háttinn á að fjárfesta í samvinnu við heimamenn. „Við höfum keypt í nokkrum félögum með heimamönnum en getum svo keypt þá út þegar fram líða stundir." Sveinn segir að vel gangi en að útboðsmarkaðurinn í Lettlandi sé ekki mjög þróaður enn sem komið er og líkir honum einnig við ástandið eins og það var hér á landi fyrir nokkrum árum. „Menn þurfa að hafa sambönd og því er mikilvægt að hafa heimamenn í liði með sér. En ESB aðildin gerir það einnig að verkum að svona viðskiptahættir eru á undanhaldi." Aðspurður hvort fyrirtæki Gámaþjónustunnar sé með stóra markaðshlutdeild í Lettlandi sagðist hann ekki vera með tölur þar að lútandi á reiðum höndum en segir að þeir telji sig eiga fullt erindi inn á markað. Hann bætir því við að fyrirtækið beiti sömu aðferð og hefur gagnast þeim vel á heimamarkaði. „Við höfum verið að beita sama módeli og við notuðum hér á landi. Við kaupum smærri fyrirtæki og sameinum þau," segir Sveinn og bætir því við að þannig sé hægt að ná fram ákveðnu hagræði í innkaupum og rekstri. „Markaðurinn er mikið til mettaður hér á Íslandi og við getum ekki stækkað nema fara út fyrir landsteinana," segir Sveinn Hannesson að lokum.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira