Stjórnarformaður SPRON seldi part af hlut sínum fyrir markaðsskráningu 5. febrúar 2008 13:17
Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, segist hafa selt hluta af hlut sínum í félaginu áður en það fór á markað. Þetta kom fram í hádegisviðtali Markaðarins í dag.Stjórn SPRON hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að birta ekki upplýsingar um sölu stjórnarmanna á hlutum í félaginu áður en það fór á markað. Hafa samtök gagnrýnt svör fyrirtækisins vegna þess. Þar hefur komið fram að SPRON hafi ekki verið heimilt að birta opinberlega upplýsingar um viðskipti stjórnarmanna „þar sem það var talið geta valdið ruglingi við hlutabréfamarkaðinn."Hildur sagði í viðtalinu að settar hefðu verið reglur um stofnfjármakað sem Fjármálaeftirlitið hefði blessað og fyrirtækið hefði farið í einu og öllu eftir því. Það væri regluvörður innan fyrirtækisins sem samþykkti öll viðskipti innherjaviðskipti hjá SPRON.Aðspurð um sölu stjórnarmanna á hlutum í SPRON fyrir skráningu á markað sagði Hildur að hún gæti ekki upplýst fyrir aðra en hún hefði sjálf selt. Hún hefði verið að kaupa og selja í félaginu og fyndist það í lagi því hún hefði farið eftir bestu samvisku og bestu reglum.Aðspurð hvort hún hefði ekki haft trú á fyrirtækinu sagði Hildur að hún hefði hana. Aðspurð hvers vegna hún hefði viljað eiga hlut áfram sagði Hildur: „Kannski vildi ég eiga minni hlut í því af því að þessi hlutur hafði vaxið mikið. Gengið hafði hækkað mikið."Hildur var einnig spurð hvort ímynd SPRON hefði ekki beðið hnekki við þessa umræðu og svaraði hún því til að hún héldi að svo væri ekki. Markaðsaðstæður hefðu verið erfiðar þegar SPRON fór á markað en fyrirtækið hefði allt eins getað hækkað.Aðspurð um orðróm þess efnis að hún væri á leið úr sæti stjórnarformanns sagðist Hildur ekki hafa heyrt hann en að hún myndi bjóða sig fram aftur á aðalfundi 27. febrúar. Það væri svo hluthafa að taka ákvörðun um það.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira