Stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar blásin af 30. janúar 2008 09:59
Kaup Kaupþings banka á hollenska bankanum NIBC voru tilkynnt þann 15. ágúst á síðasta ári. Jafnframt fylgdi sögunni að um stærstu einstöku kaup íslensks félags í sögunni væri að ræða. Kaupverðið var tæpir 3 milljarðar evra eða í kringum 300 milljarða króna. Nokkur aðdragandi hafði verið að kaupunum en NIBC var einn fyrsti bankinn í Evrópu sem varð fyrir barðinu á svokölluðum undirmálslánum á fasteignamarkaðinum í Bandaríkjunum. Tap bankans á þeim gerði það meðal annars að verkum að eigandi bankans, bandaríski fjárfestingasjóðurinn JC Flowers, vildi selja. Fljótlega eftir að kaupin voru ákveðin var sótt um heimild til þeirra til Fjármálaeftirlitsins. FME hefur tekið sér dágóðann tíma til að kanna málið, eða hátt í fjóra mánuði. Hinsvegar lá fyrir að FME væri að falla á tíma með álit sitt. Þeim hefði að öllu eðlilegu borið að gefa út álit sitt í síðasta lagi í dag eða fyrir opnun markaða í fyrramálið. Einfaldlega sökum þess að Kaupþing tilkynnir um ársuppgjör sitt á morgun. Sökum óróans og óvissunnar á fjármálamörkuðum heimsins á síðustu mánuðum síðasta árs urðu þær raddir háværari um að Kaupþing hefði ekki bolmagn til að standa við kaupin á NIBC. Þær raddir urðu svo háværari eftir áramótin. Hlutir í Kaupþingi féllu sem og hjá öllum félögum sem mynda úrvalsvísitöluna. Þá hjálpaði ekki til að tryggingarálagið á skuldabréf Kaupþings rauk upp í áður óþekktar hæðir eða yfir 500 púnkta. Nú stendur Kaupþing hinsvegar eftir nokkuð sterkt á svellinu. Það að hætt hafi verið við kaupin þýðir að Kaupþing er með góða lausafjárstöðu, hlutir í bankanum eru á uppleið og skuldabréfaálagið hefur þegar lækkað um 125 púnkta í morgun.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira