Viðskipti innlent

Kjörið í stjórn HydroKraft Invest

Halldór Kristjánsson verður stjórnarformaður HydroKraft.
Halldór Kristjánsson verður stjórnarformaður HydroKraft. MYND/Anton Brink

Stefán Pétursson, sem stjórnað hefur fjármálasviði Landsvirkunar undanfarin ár, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HydroKraft Invest, fjárfestingafélags í eigu Landsbankans og Landsvirkjnar Power, dótturfélags Landsvirkjunar.

Fram kemur í tilkynningu að aðalfundur félagsins hafi verið haldinn í dag og voru þeir Halldór J. Kristjánsson, Ívar Guðjónsson og Pétur Örn Sverrisson kjörnir í stjórn félagsins fyrir hönd Landsbankans og Bjarni Bjarnason Friðrik Sophusson og Björn Stefánsson fyrir hönd Landsvirkjunar. Halldór verður formaður stjórnar og Bjarni varaformaður.

HydroKraft Invest hefur það að markmiði að fjárfesta í umbreytingaverkefnum og nýframkvæmdum á sviði endurnýjanlegrar orku. Hluthafar hafa samþykkt að leggja félaginu til allt að 10 milljarða króna eigið fé eftir því sem fjárfestingaverkefni á næstu árum gefa tilefni til.

Félagið var stofnað í mars síðastliðnum og hefur síðan leitað tækifæra á alþjóðavettvangi, einkum þá í Suðaustur-Evrópu og eru nú til skoðunar verkefni í nokkrum löndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×