Hagnaður Straums nam rúmum 14 milljörðum kr. 29. janúar 2008 06:38
Hagnaður Straums eftir skatta árið 2007 nam 162,9 milljónum evra eða 14,3 milljörðum króna. "Þrátt fyrir óvenjulega erfiðar markaðsaðstæður á seinni helmingi ársins skiluðum við viðunandi hagnaði yfir árið og bjuggum í árslok að öflugum fjárhag og sterkri lausafjárstöðu," segir William Fall forstjóri í tilkynningu um uppgjörið. Mikil aukning vaxta- og þóknunartekna á árinu er í samræmi við stefnu bankans. Þóknunartekjur hækkuðu um 56% milli ára og námu 40% af rekstrartekjum. Vaxtatekjur hækkuðu um 62% milli ára. Áhersla var lögð á að styrkja stöðuga tekjustofna en markvisst dregið úr vægi hlutabréfa í eignasafni bankans í því skyni að draga úr áhættu. Hreinar þóknunartekjur samstæðunnar jukust um 55,5% á milli ára og námu 131,3 milljónum evra eða 11,5 milljörðum króna. Það samsvarar 39,8% af rekstrartekjum. Hreinar vaxtatekjur jukust um 61,8% á milli ára og námu 68,8 milljónum evra eða liðlega 6 milljörðum króna. Það samsvarar 20,9% af rekstrartekjum. Gengishagnaður nam 111,4 milljónum evra eða 9,8 milljörðum króna samanborið við 392,3 milljónir evra árið 2006. Umskiptin má að miklu leyti rekja til erfiðra markaðsskilyrða fyrir eigin viðskipti og niðurfærslu á fjárfestingabók vegna lækkunar á markaðsverði hlutabréfa á tímabilinu.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira