Þriðji besti dagurinn frá upphafi í Kauphöllinni 25. janúar 2008 16:52 Wilhelms Petersen, forstjóri Atlantic Petroleum.
Íslenska úrvalsvísitalan hækkaði um 4,82 prósent í dag sem er þriðji besti dagurinn í sögu Kauphallarinnar að sögn Kaupþings. Stendur vísitalan nú í 5.451 stigi. Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um 17,9 prósent, og stendur markaðsvirði þess nú í rétt um 1600 milljónum. SPRON hækkaði um 9,67 prósent og stendur í 6,69. Exista hækkaði um 7,38 prósent, FL Group um 5,94 prósent og Glitnir banki um 5,88 prósent. Icelandic Group lækkaði í dag, eitt félaga, um 1,12 prósent. Fram kemur í hálffimmfréttum Kaupþings að bréf hafi hækkað mikið annan daginn í röð þegar fjárfestar gripu gæsina og festu kaup á hlutabréfum í fjármálafyrirtækjum og fjárfestingafélögum sem hafa fallið hvað mest í verði síðustu vikurnar. Bent er á að dagurinn í dag sé sá besti í rúm sex ár, en 4. október 2001 hækkað úrvalsvísitalan um 6,11 prósent. Þetta er jafnframt þriðji besti dagurinn frá upphafi, það er frá árinu 1993. „Ætla má að kaupendur hafi beðið á hliðarlínunni eftir að óveðrinu slotaði og streymt inn í stríðum straumum inn á markaðinn í dag eftir að ljóst varð að hann hafði náði til botns í bili á miðvikudaginn. Þessi atburðarás sver sig í ætt við þá þróun sem hefur orðið á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í vikunni," segir í hálffimmfréttunum. Þó er bent að ekki sé víst að hækkanirnar séu komnar til að vera enda ríki mikil óvissa enn á fjármálamörkuðum með tilheyrandi óstöðugleika. Á hitt beri að líta að verðkennitölur margra íslenskra fyrirtækja - einkum í fjármálaþjónustu - séu orðnar mjög hagstæðar eftir undanfarna lækkunarhrinu. „Úrvalsvísitalan stóð í 5.531 stigi í upphafi vikunnar en fór um tíma niður fyrir 5.000 stiga múrinn um miðja vikuna. Við lokun markaða á miðvikudaginn hafði vísitalan lækkað um fimmtung frá áramótagildi sínu og um 8,6% á fyrstu þremur viðskiptadögum vikunnar. Markaðir tóku hins vegar við sér í gær; hækkaði vísitalan þá um 2,97%. Dagurinn í dag reyndist hins vegar einn sá besti frá upphafi er Úrvalsvísitalan steig upp um 4,8% eins og áður sagði og endaði vikuna í 5.451 stigi. Úrvalsvísitalan hefur því hækkað um 7,9% frá því hún náði lægsta gildi í vikunni," bendir greiningardeild Kaupþings á.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira