Vörn og markvarsla eru lykilatriði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2008 13:05 Aron Kristjánsson, einn sérfræðinga Vísis um EM í handbolta. „
Ég býst við mjög erfiðum leik og Frakkarnir hljóta að vera með sært stolt eftir leikinn í Magdeburg í fyrra," sagði Aron Kristjánsson, einn þriggja sérfræðinga Vísis um EM í handbolta, um leikinn gegn Frökkum síðar í dag. Þessi lið mættust á HM í Þýskalandi í fyrra og voru þá Íslendingar með bakið upp við vegg. Þeir þurftu að vinna eftir óvænt tap fyrir Úkraínu og gerðu það með stæl. Frakkar eru þó ríkjandi Evrópumeistarar og án nokkurs vafa með eitt sterkasta lið heims í dag. „Þeir hljóta að mæta mjög grimmir til leiks í dag," sagði Aron. „Þó svo að þeir eru öruggir áfram í milliriðilinn með tvö stig hljóta þeir vilja fara áfram með fjögur stig." Aron segir þó að verkefnið sé alls ekki vonlaust fyrir íslenska liðið. „Strákarnir sýndu í Þýskalandi að við getum unnið Frakkana. Við erum með þannig lið að það getur unnið allar þjóðir heims en að sama skapi tapað fyrir öllum þeim þjóðum sem spila á EM." „Við erum ekki enn í þeim klassa að geta bókað sigur gegn þjóðum eins og Tékklandi - eins og Króatía og Frakkland geta vissulega gert." „Það sem við þurfum að gera er að halda áfram að spila sterkan varnarleik og markvörslu. Það er algert lykilatriði ef við ætlum að eiga séns gegn liði eins og Frakklandi." „Hinum megin á vellinum verðum við svo að fá skytturnar okkar í gang. Við vinnum ekki þennan leik ef skytturnar halda áfram á þeirri braut sem þeir voru á í fyrstu tveimur leikjunum. Þeir verða að ná sér á strik og vonandi gerist það í þessum leik." „Fyrir mót var talað um að sóknarleikurinn væri sterkasta hlið íslenska liðsins og allir bjuggust við að liðið myndi skora mikið af mörkum í öllum sínum leikjum. Að sama skapi var búist við því að við myndum vera í erfiðleikum með varnarleikinn og markvörsluna en annað hefur komið upp á daginn. Það er vonandi að sóknarleikurinn detti inn í dag en til þess þurfa menn eins og Einar, Logi og Snorri að bæta sinn leik." Aron segir þó að íslensku hraðaupphlaupin séu þó með þeim bestu í heiminum. „Gegn Slóvökum sýndum við að hraðaupphlaupin eru okkar sterkasta vopn og að þar erum við í fremstu röð." Ekki er búist við því að Ólafur Stefánsson verði með í dag en hann var ekki með gegn Slóvökum vegna meiðsla. „Fjarvera Ólafs gerir hlutverkið vissulega erfiðara. Ólafur er með betri leikmönnum heims. En á hinn bóginn þýðir ekki að halla sér endalaust upp að honum. Aðrir leikmenn verða að þjappa sér saman og sýna að þeir geti verið án hans." „Þar að auki eigum við tvo mjög ólíka leikmenn í hans stöðu. Annars vegar Einar Hólmgeirsson sem er mikill skotmaður og svo Ásgeir Örn Hallgrímsson sem er duglegri að leita semherja sína uppi. En báðir þurfa þeir að horfa meira á markið. Það er eins og að þeir hafi verið ragir við að láta skotið flakka." Aron segir að auk markvarðanna sé Sigfús Sigurðsson besti maður íslenska liðsins til þessa. „Þeir hafa staðið sig gríðarlega vel. Sigfús er búinn að stýra varnarleiknum eins og herforingi og er líka búinn að vera klókari en áður. Hann hefur ekki fengið á sig margar brottvísanir sem er mjög jákvætt. Hann og Ásgeir Örn ná mjög vel saman í 5-1 vörninni þar sem Guðjón Valur er fremstur. Guðjón Valur er líklega með betri leikmönnum í heiminum í þeirri stöðu."
Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Þór Ak. - KR | Tapar KR aftur fyrir nýliðum? Íslenski boltinn Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira