Skipti áfram með í baráttunni um slóvenska símann 14. janúar 2008 15:45 Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, er hóflega bjartsýnn á framhaldið varðandi kaup á slóvenska símanum. MYND/Róbert
Einkavæðingarnefnd slóvensku ríkisstjórnarinnar hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Skipti annars vegar og fjárfestingarsjóðina Bain Capital og Axos Capital hins vegar, sem buðu sameiginlega í félagið, um kaup á Telekom Slovenije. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skiptum, móðurfélags Símans. Þar segir enn fremur að nefndin hafi tekið þessa ákvörðun á grundvelli tilboða sem félögin lögðu fram fyrr í dag. Þriðja fyrirtækið, hið ungverska Magyar Telekom, var einnig með í kapphlaupinu um slóvenska símann en það hefur nú helst úr lestinni. Slóvenska ríkið stefnir að því að selja tæplega 50 prósent hlut í Telekom Slovenije til kjölfestufjárfestis, sem mun í kjölfarið þurfa að gera öðrum hluthöfum í félaginu yfirtökutilboð. Slóvenska ríkið hyggst þó halda eftir fjórðungshlut í félaginu. Haft er eftir Brynjólfi Bjarnasyni, forstjóra Skipta, í tilkynningunni að forsvarsmenn Skipta séu hóflega bjartsýn eftir þessa niðurstöðu nefndarinnar. „Nú göngum við til viðræðna við Einkavæðingarnefndina og væntum þess að niðurstaða liggi fyrir fljótlega. Frekari dráttur málsins er hins vegar óheppilegur vegna fyrirhugaðrar skráningar Skipta í OMX Kauphöllina." Eins og kunnugt er veitti fjármálaráðherra eigendum Skipta frest til þess að setja félagið á markað til loka mars. Samkvæmt samningi sem gerður var við sölu Símans árið 2005 áttu Skipti að fara á markað fyrir árslok 2007 þar sem almennum fjárfestum yrði gefinn kostur á að kaupa um 30 prósent í félaginu. Vegna þátttöku í einkavæðingu slóvenska símans, þar sem Skipti eru bundin trúnaði varðandi ýmsar upplýsingar, var ákveðið að leyfa félaginu að fresta skráningu sinni á markað. Telekom Slovenije er leiðandi fjarskiptafyrirtæki í Slóveníu, auk þess að vera með vaxandi starfsemi í nágrannalöndunum. Hjá félaginu starfa um 4.400 starfsmenn. Tekjur félagsins á fyrstu 9 mánuðum ársins 2007 námu alls um 54 milljörðum króna og hagnaður félagsins fyrir skatta nam um 9,4 milljörðum íslenskra króna.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Sjá meira