Ekki versla á Íslandi Íris Erlingsdóttir skrifar skrifar 13. janúar 2008 09:54 Þetta segir Íris Erlingsdóttir fyrrum ritstjóri Gestgjafans í grein sem hún hefur sent Vísi. Þar talar hún um verslunaræði íslendinga í útlöndum og þá sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem eitt stærsta dagblað Minneapolis var með forsíðufrétt um málið. Verslunarorgíur Íslendinga erlendis voru á forsíðu eins stærsta dagblaðs Bandaríkjanna, The Minneapolis Star Tribune, núna rétt fyrir jólin. Greinin fjallaði um vinsælar verslunarferðir útlendinga, en sérstaklega Íslendinga, vegna lágs gengis dollars, til Ameríku og forsíðumynd blaðsins sýndi örþreyttan Íslending þar sem hann beið úti á Humphrey flugvelli eftir fluginu heim, liggjandi ofan á jólagóssinu. Þegar ég las þetta yfir kaffibollanum mínum þennan desembermorgun í Minnesota þar sem ég hef búið undanfarin sjö ár, hugsaði ég með mér að nú hefðum við alveg gengið af göflunum í neyslunni. Neyslugleði Íslendinga var orðin að forsíðufrétt í heimspressunni. Frá því að heyra algeng ummæli útlendinga um ættjörðina ástkæru ,,Ísland... já, ó þú ert íslensk, ég var einmitt að horfa á heimildamynd á PBS um alkóhólismann á Íslandi, víst verst í heiminum...." nú yrði það „já, Íslendingar, ég las að þeir væru heimsins versta dæmi um neysluhyggju..." En það var ekki fyrr en ég kom heim yfir jóla-og nýárshátíðina að ég skildi hvers vegna Íslendingar halda áfram að fara til útlanda til að versla þó landið sé orðið fullt af "big-box" búðum eins og hér í Ameríku og allt sé til af öllu. Í íslenskri verslunarmenningu er það alltaf það sama sem stendur upp úr hvað neytendur varðar: óheyrileg dýrtíð og afburða léleg þjónusta. Verðlagning, sérstaklega á fatnaði, er yfirgengileg - klúr er helst orðið sem manni dettur í hug til að lýsa okrinu. En það er ekki bara það að krómslegnar okurbúllur mannaðar spjátrungslegu afgreiðslufólki séu fullar af nankinbrókum sem kosta hálf mánaðarlaun meðallaunþega - íslenskir verslunareigendur eru líka enn fastir í því sem ég kalla KGB stílinn hvað snertir þjónustu við neytendur, eins og ég komst að af eigin raun yfir hátíðarnar heima á Íslandi. Ég hlakkaði til að borða jólamatinn, sem var hamborgarhryggur, og í Hagkaup keypti ég tvo hryggi, einn til að elda á aðfangadagskvöld og annan til að taka með mér út. Hamborgarhryggirnir eins og maður hefur fengið þá heima í gegnum tíðina eru nefnilega ekki auðfundnir í USA; maður verður að leita uppi bændur og gamalreynda kjötvinnslumenn í smábæjum með skringilegum nöfnum til að finna reykt svínakjöt sem lítur út eins og alvöru kjöt með kjötþráðum en ekki eins og pressað frauðplast. En þegar hryggurinn hafði verið eldaður kom í ljós að kjötvinnslan í Hagkaup virtist hafa hrifist af þessari amerísku aðferð við meðferð svínakjöts svo eftir jólin hélt ég niður í Hagkaup í Kringlunni til að skila hryggnum. Ég dró kjötið ásamt kvittun upp úr rauðum Hagkaupspokanum og sagðist vilja skila því. Afgreiðsludaman leit á mig og hallaði undir flatt. „Veistu ég get ekki tekið við þessu, það er ekki hægt að skila mat... Það má ekki endurgreiða matvöru." Ég hafði vart upphafið ræðu mína um hvurslags eiginlega léleg þjónusta þetta væri, um Íslendinga sem búa erlendis og hrörnun íslenskrar svínakjötsvinnslu þegar hún sá aumur á mér, tók up penna og blað og byrjaði að fylla út innleggsnótu. „Við megum nú ekki gera þetta, en ... þetta er allt í lagi, ég geri bara undanþágu fyrir þig." Ég hafði reyndar ætlað að fá peningana mína til baka því ég hugðist fara niður í Nóatún til að kaupa annan hrygg, en sagði ekkert þar sem ég átti eftir að versla nokkrar íslenskar bækur og gat notað nótuna til þess. Laus við svínið hélt ég beinleiðis yfir í 66°N, þar sem ég hafði fjárfest í jólagjöf sem átti að fara aftur með fjölskyldunni hingað út. Gjöfin, jakkapeysa, passaði ekki svo það þurfti að skipta henni. En rétta stærðin var ekki til, hvorki þar né í öðrum verslunum 66°N. Okei.... jæja, ég ætla þá bara að fá þetta endurgreitt, sagði ég við afgreiðslustúlkuna, enda hafði ég borgað með debetkorti fyrir vöruna. Hún leit á mig eins og ég hefði sagt eitthvað dónalegt eða lagt til að hún tæmdi peningakassann ofan í töskuna mína. „Endurgreitt?! Nei. Það er ekki hægt." Hvað meinarðu það er ekki hægt, spurði ég. „Það er ekki gert hérna. Það bara tíðkast ekki í búðum á Íslandi að maður fá endurgreitt. Þú getur fengið innleggsnótu." Bíddu nú við, hvar er ég stödd, hugsaði ég, er þetta Rassgatistan eða Podunkistan? Hér er ég með vöru sem ég staðgreiddi, ónotaða, enn með miðunum á, í gjafaumbúðunum frá versluninni sjálfri, með kvittun, það er ekkert til í búðinni sem ég get notað, en ég get ekki fengið hana endurgreidda? Ég bý erlendis, svo hvað á ég að gera við innleggsnótu, ég týni henni sennilega eða gleymi henni, ég veit ekki hvenær ég kem aftur hingað. Þá datt mér snjallræði í hug. Það er 66°N sjoppa í flugstöðinni í Keflavík, kannski get ég notað hana þar... „Þú getur prófað það," sagði afgreiðslustúlkan, greinilega fegin að losna við þessa freku kellingu út úr búðinni. Lítið úrval var í fríhafnarbúðinni, en ég fann eina peysu sem passaði hvað varðaði stærð og verð. Ég lagði peysuna á afgreiðsluborðið ásamt innleggsnótunni. „Nei," sagði afgreiðsludaman, eftir að hún hafði litið á innleggsnótuna merkta lógói 66°N í stórum stöfum. „Við megum ekki taka við þessu," sagði hún eins og ég hefði lagt notaðan klósettpappír á borðið. Nú var mér alveg nóg boðið. Ég vissi að þessi markvissa „léleg þjónusta er okkar stolt" stefna verslunareigendanna var ekki vesalings konunni að kenna, en að geta ekki notað innleggsnótu 66°N í þeirra eigin verslun... Það sauð í mér pirringurinn. Klukkustundar biðin eftir að tékka inn í flugið, og margfaldar vegabréfs- og skósólaskoðanir yfirvalda í flugstöðinni höfðu heldur ekki bætt skap mitt. Ég bað um að fá að tala við verslunarstjóra, en það var enginn í búðinni „yfir." „Þú getur talað við Halldór," sagði konan. „Hann er yfir þessu öllu, hann er í Reykjavík..." Svo ég hélt aftur til Ameríku, peysulaus og orðlaus yfir dónaskap íslenskra kaupmanna. Ég reyni að liggja á innleggsnótunni þangað til ég kem heim næst, eða e.t.v. gef ég hana einhverjum í afmælisgjöf. Sennilega get ég fengið alveg eins jakka í Columbia Sportswear útivistarfatabúðinni hérna rétt hjá fyrir þrjú eða fjögur þúsund kall eða minna á útsölu í staðinn fyrir tíu þúsund krónurnar sem ég greiddi fyrir hann á Íslandi. Enda var það ekki jakkinn sjálfur sem var það mikilvægasta - ættjarðarástin birtist í ýmsum myndum og ein þeirra er að vera stundum í sér „íslenskum" fatnaði, íslenskri lopapeysu, nú eða flík sem á stendur 66°N og er búinn til í Sjóklæðagerðinni. Dálítið kúl. (En nú er ég reyndar ekki alveg viss um hvað er séríslenskt við 66°N fatnaðinn. Á fallegri 66°N húfu sem dóttir mín fékk í jólagjöf stendur: Made in Latvia.) Ég hef ekki enn hringt í Halldór (eða Hagkaup) en það væri fróðlegt að vita, frá honum eða einhverjum forsvarsaðilum íslenskra verslunareigenda, hvers vegna þeim finnst í lagi að bjóða íslenskum neytendum upp á svona þjónustuleysi. En þangað til mun ég í framtíðar ferðalögum aftur heim reyna að gera eins og heimamenn á Fróni og forðast íslenskar verslanir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason skrifar Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar Skoðun Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hundrað doktorsgráður Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun EES: ekki slagorð — heldur réttindi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Að þjóna íþróttum Rögnvaldur Hreiðarsson skrifar Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir skrifar Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ísland, öryggi og almennur viðbúnaður Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Hugleiðing um jól, fæðingu Krists og inngilding á Íslandi Nicole Leigh Mosty skrifar Skoðun Betri en við höldum Hjálmar Gíslason skrifar Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Setjum við Ísland í fyrsta sæti? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Skattahækkanir í felum – árás á heimilin Lóa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hér starfa líka (alls konar) konur Selma Svavarsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar Skoðun 5 vaxtalækkanir á einu ári Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Falskur finnst mér tónninn Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Treystir Viðreisn þjóðinni í raun? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þingmaður með hálfsannleik um voffann Úffa Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Allt fyrir ekkert – eða ekkert fyrir allt? Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar
Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar
Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun