Arnór: Danir þurfa fyrst að vinna okkur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2008 13:15 Arnór Atlason í leik með félagsliði sínu, FC Kaupmannahöfn. Mynd/Birkir Baldvinsson
Arnór Atlason gefur lítið fyrir yfirlýsingar Dana um að vinna gullið á EM í Noregi. Þeir verði fyrst að vinna íslenska liðið. Arnór leikur með toppliðinu í dönsku deildinni, FC Kaupmannahöfn, og þekkir því afar vel til danska landsliðsins. „Þeir eru búnir að gefa það út að þeir ætla að vinna gullið. En ef þeir mæta okkur á mótinu vinna þeir ekki þann leik - það get ég alveg fullyrt." Danir hafa náð tveimur bronsverðlaunum á síðustu tveimur stórmótum. „Það er gríðarlega mikill handboltaáhugi í Danmörku og eftir að stelpunum fór að ganga illa er karlalandsliðið orðið aðalnúmerið." Það er þó enn tvísýnt um þátttöku Arnórs þar sem hann á við meiðsli í hné að stríða. „Ég meiddist í leikjunum gegn Ungverjum í lok október og var frá í smá tíma eftir það. En síðan ég byrjaði aftur að spila hef ég ekkert fundið fyrir meiðslunum fyrr en ég fékk hnykk á hnéð á æfingu á miðvikudaginn. Ég mun taka því rólega á næstu dögum og fer væntanlega í læknisskoðun í dag. Ákvörðun um framhaldið verður svo tekin eftir það." Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Arnór lendir í meiðslavandræðum fyrir stórmót. Hann hefur í raun ekki verið heill á stórmóti síðan á hans fyrsta móti, á HM í Túnis árið 2005. „Ég var með rifinn liðþófa í Sviss og fór í aðgerð strax eftir mótið. Í Þýskalandi var ég í vandræðum með hælinn sem var að plaga mig allt mótið. En það þýðir ekkert að sökkvað sér í volæði heldur bara vona það besta." Fyrsti leikur Íslands á EM verður gegn Svíum. Arnór þekkir einnig vel til sænska landsliðsins. „Ég er með mörgum Svíum í liði, meðal annarra Martin Boquist sem hefur verið að tala um þennan leik síðan það var dregið. Ég veit fyrir víst að þeir eru skíthræddir við okkur. En þeir vilja hefna fyrir tapið í undankeppni HM 2007. Ég tel hins vegar að ef við byrjum vel munu þeir fara á taugum. Ef við mætum á tánum og byrjum vel þá vinna þeir okkur ekki."
Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti Þór Ak. - KR | Tapar KR aftur fyrir nýliðum? Íslenski boltinn Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira