Tveir nýir framkvæmdastjórar hjá Icebank 9. janúar 2008 11:09
Í tengslum við breyttar áherslur í rekstri Icebank hefur skipulagi bankans verið breytt. Nýju tekjusviði, fyrirtækjaráðgjöf, hefur verið bætt við og tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir, þeir Aðalsteinn Jóhannsson og Sveinn Andri Sveinsson. Fyrirtækjaráðgjöf mun veita viðskiptavinum Icebank þjónustu við kaup og sölu á fyrirtækjum hér heima og erlendis með áherslu á tækifæri fyrir fjárfesta í Austur-Evrópu. Einnig hefur rekstrarsviði bankans verið skipt upp og nýtt svið, fjármála- og upplýsingatæknisvið, tekið til starfa. Aðalsteinn Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Icebank. Aðalsteinn var annar stofnenda Behrens Fyrirtækjaráðgjafar hf. sem Icebank keypti síðastliðið haust. Behrens Fyrirtækjaráðgjöf hefur á undanförnum árum haslað sér völl á sviði ráðgjafar við kaup og sölu á fyrirtækjum á Íslandi og í Eystrasaltsríkjunum, þar sem félagið hefur verið eitt af leiðandi fyrirtækjum á því sviði. Fyrir stofnun Behrens Fyrirtækjaráðgjafar hf. starfaði Aðalsteinn m.a. sem fjárfestingastjóri hjá Íslenska hugbúnaðarsjóðnum. Aðalsteinn útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík árið 2001. Sveinn Andri Sveinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og upplýsingatæknisviðs Icebank. Sveinn Andri hefur verið framkvæmdastjóri Hands Holding hf. frá desember 2006, eignarhaldsfélags í upplýsingatæknigeiranum með starfsemi í fimm löndum. Áður en Sveinn Andri hóf störf hjá Hands Holding var hann framkvæmdastjóri fjármálasviðs EJS og hluta af tímanum einnig framkvæmdastjóri EJS Group. Sveinn Andri var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Norðurljósa og Íslenska útvarpsfélagsins frá 1996. Fyrir þann tíma starfaði Sveinn Andri m.a. hjá KPMG og Connecticut Bank and Trust ásamt því að kenna við Verslunarskóla Íslands. Sveinn Andri er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1988.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Sjá meira