Alfreð: Hreiðar gæti orðið okkar framtíðarmaður 7. janúar 2008 19:45 Alfreð Gíslason.
Í dag kom Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari, heim frá Danmörku. Hann mætti á æfingu hjá B-landsliðinu sem hefur verið að æfa undir stjórn Kristjáns Halldórssonar. B-liðið er á leið til Noregs og mun leika í æfingamóti ásamt Ungverjalandi, Portúgal og heimamönnum. En eiga leikmenn B-liðsins góða möguleika á að komast í lokahópinn? „Ég er búinn að velja þrettán menn í lokahópinn en svo ræðst það eftir Tékkaleikina og ferðina hjá B-liðinu til Noregs hverjir koma inn í viðbót," sagði Alfreð í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2. A-landslið Íslands mætir Tékkum í tveimur leikjum á sunnudag og mánudag en þetta verður lokaverkefnið fyrir EM sem hefst fimmtudaginn 17. janúar með leik gegn Svíum. Alfreð hefur áhyggjur af varnarleik íslenska liðsins fyrir mótið. „Við erum í vissum vandræðum eins og sást best í leiknum gegn Dönum í gær. Við fengum mikið af hraðaupphlaupum og jafnvel hraðri miðju í bakið á okkur. Það eru þó jákvæðir punktar, til dæmis var Ásgeir að leika vel á miðjunni þrátt fyrir að hafa fengið rauða spjaldið. Það var mjög ósanngjarn dómur að mínu mati." Alfreð er ánægður með frammistöðu markvarðarins Hreiðars Guðmundssonar. „Ég var mjög ánægður með hann og þá sérstaklega í fyrri hálfleik gegn Danmörku. Hann er að sýna það að hann gæti orðið okkar framtíðarmaður," sagði Alfreð á Stöð 2.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Fleiri fréttir Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ „Þeir spila hægan bolta og reyna að svæfa mann“ „Þetta er klárlega högg“ Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn „Fannst við stýra leiknum vel og láta þetta fara í okkar átt“ „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Tölurnar á móti Króatíu: 15-1 fyrir Króata í mörkum með langskotum „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Þorsteinn inn en Andri og Elvar fyrir utan Myndir: Fjölskyldustemning í Fan Zone Elvar úr leik í átta vikur: „Hans verður sárt saknað“ Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Ómar segist eiga meira inni Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ „Virkar eins og maður sé að væla“ Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Sjá meira