Viðskipti innlent

Stefanía til liðs við Keili

Stefanía Katrín Karlsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri íþrótta-, heilsu- og heilbrigðisklasa Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs á gamla varnarliðssvæðinu.

Stefanía var rektor Tækniháskóla Íslands frá 2002-2005 en hefur síðan verið bæjarstjóri í Árborg, starfað við fyrirtækjaráðgjöf hjá sparisjóðnum Byr og verið sjálfstætt starfandi rekstrarráðgjafi eftir því sem segir í tilkynningu Keilis.

Stefanía er með háskólagráðu í raunvísindum og kennsluréttindi frá KHÍ auk MBA-gráðu í viðskiptafræði og meistarargráðu í stjórnmálafræði frá HÍ.

Undir íþrótta-, heilsu- og heilbrigðisklasa Keilis fellur Íþróttaakademían en auk þess mun Stefanía leiða frekari uppbyggingu og þróun náms og rannsókna innan klasans í samstarfi við háskóla, fyrirtæki og stofnanir á þessu sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×