Alrangt að íslenskir fjárfestar hafi tapað á Capinordic 3. janúar 2008 14:43
Forstöðumaður upplýsingasviðs fasteignafélagsins Landic Property segir það alrangt að íslenskir fjárfestar hafi tapað á fjárfestingu í fjármálafyrirtækinu Capinordic. Þvert á móti hafi félagið hagnast verulega á bréfunum í félaginu. Fram kom í frétt danska viðskiptablaðsins Börsen fyrr í vikunni að hópur evrópskra fjárfesta hefði keypt síðustu bréf fasteignafélagsins Keops í Capinordic fyrir skemmstu og að Íslendingar á bak við félögin Keops og Stoðir, sem sameinuðust í Landic Property í haust, hefðu tapa milljarði á sölunni. Þessu hafnar Páll Benediktsson, forstöðumaður upplýsingasviðs Landic. Hann segir frétt Börsen kolranga þar sem öllu sé snúið á haus. Börsen áætli hvað fengist hafi fyrir bréfin í Capinordic og miði við hvað hefði getað fengist fyrir þau í haust þegar gengið var hærra. Hins vegar hafi bréfin verið keypt miklu fyrr og á lægra gengi en selt hafi verið á. „Ég fullyrði því að félagið hafi hagnast verulega á bréfunum í Capinordic," segir Páll. Páll bendir enn fremur á að þegar Stoðir yfirtóku Keops í haust og Landic Property var myndað hafi verið gefið út að allur hluturinn í Capinordic yrði seldur þar sem hann samdræmdist ekki viðskiptahugmynd Landic. „Capinordic er fjármálafyrirtæki en Landic einbeitir sér að eign og útleigu á fasteignum fyrir skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Það lá því fyrir frá því í haust að allur hluturinn í Capinordic yrði seldur," segir Páll og bendir á að ekki sé verið að selja bréfin vegna lækkandi hlutabréfaverðs um allan heim eins og ýjað hafi verið að. Landic Property er eitt allra stærsta fasteignafélag Norðurlanda með eignir á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og í Finnlandi.
Mest lesið Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira