Viðskipti innlent

OMX opnar markað með réttindi tengd hlutabréfum

OMX Nordic Exchange Iceland (Kauphöllin) opnar í dag 3. janúar, nýjan

undirmarkað fyrir réttindi sem tengjast hlutabréfum. Með þessari nýju þjónustu verður mögulegt að eiga kauphallarviðskipti með ýmis réttindi sem algengt er að skapist í tengslum við útgáfu hlutabréfa, svo sem

áskriftarréttindi.

„Það er okkur ánægjuefni að bjóða upp á kauphallarviðskipti með hlutabréfatengd réttindi. Þessi nýjung mun bæta umtalsvert umhverfi viðskipta með slík réttindi. Nú verður mögulegt að eiga viðskipti sem lúta reglum Kauphallarinnar og seljanleiki mun batna til muna til hagsbóta fyrir útgefendur og eigendur hlutabréfa", segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar.

Nýi undirmarkaðurinn ber nafnið „OMX ICE Equity Rights" í viðskiptakerfinu. Hann tilheyrir hlutabréfamarkaðnum (OMX ICE Equities and related) og markaðsgerðin verður svipuð og á hlutabréfamarkaði. Aðildarreglur NOREX eiga við um viðskiptin.

Allir kauphallaraðilar á íslenska hlutabréfamarkaðnum fá sjálfkrafa aðgang að undirmarkaðnum OMX ICE Equity Rights.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×