Kauptækifæri sögð í tveimur félögum Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. apríl 2008 06:30 Lárus Welding forstjóri Glitnis
Ný afkomuspá greiningardeildar Glitnis er talin hafa stuðlað að hækkun á gengi hlutabréfa í lok síðustu og byrjun þessarar viku. Sér í lagi er horft til áhrifa á Existu og FL Group. Á mánudag hafði Exista hækkað um 21,5 prósent og FL Group um 9,6 prósent á einni viku. Félögin eru tiltekin sérstaklega í spánni sem undirverðlögð í alþjóðlegum samanburði, um leið og helstu undirliggjandi eignir þeirra eru sagðar traustar. Reiknað er með því að bréf þessara félaga hækki um meira en fimmtung á næstu 12 mánuðum. Afkomuspá Greiningar Glitnis var dreift í lok vikunnar til stærstu fjárfesta og viðskiptavina bankans. Í spánni kemur fram að sérfræðingar greiningardeildarinnar séu hóflega bjartsýnir á íslenska hlutabréfamarkaðinn til næstu mánaða og næsta árs, en reiknað er með „krefjandi ytri aðstæðum fram yfir mitt þetta ár". Á seinni hluta ársins er svo gert ráð fyrir að birti aðeins til á hlutabréfamarkaði hér, samhliða því að dragi úr lánsfjárvandamálum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Þróunin næsta kastið er hins vegar sögð munu ráðast af aðgengi íslenskra fyrirtækja að fjármagni. Innan ársins spáir Glitnir hins vegar 11,3 prósenta lækkun Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar, en hún stóð í 6.318 stigum við upphaf viðskipta. Telur bankinn að hún standi í 5.600 stigum í lok þessa árs. Samkvæmt þessu eiga helstu fyrirtæki Kauphallarinnar ekki eftir mikla hækkun það sem eftir lifir ársins, en vísitalan er nú rétt við 5.360 stigin. Samkvæmt því á vísitalan inni tæplega 4,5 prósenta hækkun út árið. Afkomuhorfur fyrirtækja hafa almennt versnað frá því að greining Glitnis gaf síðast út spá í janúar. „Á þetta sérstaklega við um fjárfestingafélögin FL Group, Exista og Atorku, en gengi þeirra ræðst að mestu af gengi undirliggjandi skráðra eigna," segir í afkomuspánni og á það bent að fyrsti fjórðungur þessa árs hafi einkennst af miklum lækkunum á innlendum og erlendum mörkuðum. Afkoma bankanna er hins vegar sögð munu verða ásættanleg. „Bankarnir hagnast verulega á gengislækkun krónunnar en á móti vegur tap af verðbréfaeignum. Þá má búast við að vanskil í bankakerfinu fari vaxandi og dregið hefur úr væntingum um arðsemi af fjárfestingabankastarfsemi." Þá eru ytri aðstæður sagðar rekstrarfélögum erfiðar, þótt minni sveiflur einkenni afkomuspá þeirra á árinu. „Við drögum þó úr afkomuvæntingum okkar fyrir Bakkavör og Marel. Þá hefur lækkun krónunnar haft verulega neikvæð áhrif á Teymi en skuldir félagsins eru að mestu leyti í erlendri mynt. Önnur félög líkt og Össur og Alfesca eru minna háð ólgusjó á fjármálamörkuðum." Þessa árs segir Glitnir að verði minnst í sögubókum fyrir ástandið á fjármálamörkuðum. „Enn ríkir óvissa um endanlegt tjón vegna bandarískra undirmálslánavafninga og lítið traust ríkir milli aðila á markaði sem eykur áhættufælni fjárfesta."
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira