Viðskipti innlent

Þinglýstum kaupsamningum fækkar um 80 prósent milli ára

MYND/Valgarð

Þinglýstum kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um nærri 80 prósent í júní síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta sýnir ný samantekt Fasteignamats ríkisins.

Alls reyndist 208 samningum þinglýst í nýliðnum júní, þar af um rúmlega 60 í síðustu viku. Samningarnir voru hins vegar ríflega þúsund talsins í sama mánuði í fyrra.

Veltan er auk þess miklu minni. Hún reyndist 7,4 milljarðar króna í nýliðnum júní og meðalvelta á hvern kaupsamning var 35,5 milljónir. Veltan í júní í fyrra var hins vegar nærri 29 milljarðar og meðalvelta á hvern kaupsamning 29,4 milljónir. Veltan reyndist því 75 prósentum minni.

Þegar júní er borinn saman við maí fækkar kaupsamningum um 17,5 prósent og velta minnkar um 0,2 prósent. Í júní síðastliðnum var þinglýst 252 kaupsamningum, velta var 7,4 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,4 milljónir króna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×