Skipti tapa vegna gengisþróunar íslensku krónunnar 29. apríl 2008 16:32 Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta. MYND/Stefán
Skipti, móðurfélag Símans, tapaði 3,6 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og er það fyrst og fremst vegna gengisþróunar íslensku krónunnar. Til samanburður var hagnaðurinn 1,4 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir einnig að salan á tímabilinu hafi aukist um 1,5 milljarða króna eða fimmtung á milli ára og nam hún samtals 8,9 milljörðum króna. Fjármagnsgjöld reyndust 5,5 milljarðar króna en þar af nam gengistap 4,4 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall Skipta reyndist er 30,4 prósent. Fyrsti ársfjórðungur var nokkuð viðburðarríkur fyrir Skipti því félagið fór í hlutafjárútboð og var skráð á markað í samræmi við ákvæði samnings um sölu Símans fyrir þremur árum. Hlutabréf voru tekin til viðskipta 19. mars en sama dag tilkynnti Exista, stærsti hluthafinn, að hann myndi gera yfirtökutilboð í Skipti. Þá gerðu Skipti tilboð í slóvenska fjarskiptafélagið Telekom Slovenije en slóvenska ríkið tilkynnti síðar að félagið yrði ekki selt að svo stöddu. Skipti var annar tveggja bjóðenda í félagið. „Þetta hefur verið viðburðaríkt tímabil hjá Skiptum og ánægjulegt að góð afkoma er af reglulegri starfsemi hvort sem litið er til fjarskipta eða upplýsingatækni. Gengisþróun íslensku krónunnar hefur hins vegar verið okkur afar óhagstæð og þrátt fyrir gengisvarnir félagsins skýrir veiking krónunnar tapið sem er á tímabilinu. Framundan eru krefjandi tímar fyrir stjórnendur og starfsfólk þar sem búast má við almennt minnkandi eftirspurn á Íslandi vegna þróunar efnahagsmála. Á slíkum tímum má hins vegar oft finna tækifæri fyrir fjárhagslega sterk félög á borð við Skipti og við munum fylgjast grannt með þróun mála á markaði næstu mánuði og misseri," segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta í tilkynningunni.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Sjá meira