Viðskiptaráð segir gjaldeyrissamkomulag gott fyrsta skref 16. maí 2008 10:32 Erlendur Hjaltason er formaður Viðskiptaráðs. MYND/Anton
Viðskiptaráð fagnar samkomulagi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Svíðþjóðar, Noregs og Danmerkur um tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga og segir þá mikilvægt fyrsta skref til að efla trúverðugleika bankans og íslensks hagkerfis. Enn fremur fagnar Viðskiptaráð þeirri tilkynningu að aukið verði enn frekar við aðgang bankans að erlendu lausafé í náinni framtíð. Í tilkynningu Viðskiptaráðs er bent á að íslenska bankakerfið hafi vaxið hratt og því sé afar mikilvægt að innviðir og stofnanaumgjörð hérlendis taki mið af því. Viðskiptaráð telur enn fremur skynsamlegt að ríkissjóður leitist eftir erlendri lántöku í samstarfi við Seðlabanka Íslands til að auka gjaldeyrisforða verulega og stórefla styrk Seðlabanka Íslands. „Aðgerðir sem þessar eru ekki einungis mikilvægar til að efla traust á íslenskum fjármálafyrirtækjum heldur einnig á hagkerfinu öllu. Þetta er því nauðsynlegt skref í baráttunni gegn verðbólgu og ætti að gera Seðlabanka Íslands kleift að lækka vexti fyrr og hraðar en ella," segir í tilkynningu Viðskiptaráðs. Enn fremur fagnar Viðskiptaráð tilkynningu Geirs H. Haarde um fyrirhugaðar breytingar og umbætur á skipulagi Íbúðalánasjóðs. Ráðið tekur undir þau orð ráðherra að með því sé hægt að bæta virkni peningastefnunnar til muna og þar með styrkja framtíðargrundvöll íslensku krónunnar.
Mest lesið Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Viðskipti erlent Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Viðskipti innlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent „Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Atvinnulíf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Sjá meira