Gefins þrotabú 16. desember 2008 05:00 Nú berast almenningi fréttir af því að ,,nýju" bankarnir hafi verið að endurselja aðilum sem farnir eru í þrot, gömlu fyrirtækin þeirra á bakvið luktar dyr. Ekkert auglýst! Ekkert uppi á borðum! Í Kastljósi 10. desember síðastliðinn var fjallað um að Apple-verslanirnar, hérlendis og á Norðurlöndunum, hefðu ekki verið auglýstar til sölu, heldur hefði verið samið við fyrrum eigendur um kaup á þrotabúinu. Að sögn skiptastjóra lá svo mikið á af því verslanirnar máttu ekki loka svo verðmæti færu ekki forgörðum. Þá má spyrja: Gat bankinn ekki rekið verslanirnar í nokkrar vikur á meðan reynt var að fá gott verð fyrir þær, hvort sem væri hér innanlands eða erlendis? Eiga þeir aðilar sem fóru með félag í þrot allt í einu nóga peninga til að kaupa þrotabúið? Svipað var uppi á teningnum nokkrum dögum fyrr, þegar fyrirtækið BT var selt. Þá keyptu Baugsmenn fyrirtækið á bakvið luktar dyr. Annað tilboð barst reyndar í verslanirnar frá fyrrum starfsmönnum sem vildu reyna að tryggja sem flestum áframhaldandi vinnu og rekstur verslananna. Sagan segir að tilboði starfsmannanna hafi verið tekið af miklu tómlæti og fyrirtækið verið sett undir Haga sem hafa nú lokað öllum verslunum BT nema tveimur (einni í Reykjavík og annarri á Akureyri) og hafa ekki tekið ákvörðun um hvort verslanirnar verði reknar áfram. Ætli þeir hafi kannski hugsað sér að selja núverandi lager um jólin, loka síðan og græða á öllu saman? Ekki boðleg vinnubrögðVið sjáum öll að svona vinnubrögð ganga ekki. Það verður að tryggja að allt sé uppi á borðum og að almenningur geti fylgst með því hvernig mál eru afgreidd. Þessi og önnur viðskipti sem eru væntanlega í farvatninu, þarf að rannsaka strax, því við þurfum að tryggja að spillingunni linni. En raunveruleikinn er víst annar. Það á aðeins að rannsaka aðdraganda og orsök bankahrunsins ,,svo draga megi lærdóm af því sem gerðist". Núna á að koma út þeim fyrirtækjum sem bankarnir hafa eignast og eins og Lúðvík Bergvinsson talaði um í Kastljósi 9. desember síðastliðinn þá liggur mikið á og það verða örugglega gerð fjölmörg mistök í ferlinu. Við erum nú heldur betur farin að fá nasasjón af því. Lúðvík mælti jafnframt með að farin yrði ,,Sænska leiðin" sem að hans sögn var þannig að þegar bankakreppa reið yfir Svíþjóð og fyrirtæki voru komin í þrot, þá var samið við viðkomandi aðila um áframhaldandi rekstur. Ætti þá ekki að fá sænska sérfræðinga með reynslu til að stýra aðgerðum? Ónei, okkur verður eflaust boðið upp á heimatilbúið ,,íslenskt" afbrigði af ,,sænsku" aðferðinni. Óviðunandi hagsmunatengslEkki fer þetta vel af stað og alla ábyrgð ber auðvitað viðskiptaráðherra sem ætti að taka af miklu meiri hörku á vinnubrögðum bankanna og skipta út lykilfólki sem var í nánum samskiptum við fyrirtæki og stærri viðskiptavini gömlu bankanna. Jafnframt þarf að rannsaka tengsl starfsmanna bankanna við þessa aðila. Hverjir hafa t.d. þegið utanlandsferðir, laxveiðiferðir eða snekkjusiglingar á kostnað þeirra fyrirtækja sem nú þurfa að ná samningum við nýju bankana? Það sama á við um þá útrásarvíkinga sem hafa skuldsett þjóðina til margra áratuga. Þeir eiga ekki að fá að kaupa neitt fyrr en mál þeirra hafa verið rannsökuð. Hverjum steini þarf að velta við og allt á að vera uppi á borðum. Það er óþolandi að hlusta á viðskiptaráðherra og aðra ráðherra nota sömu gömlu innihaldslausu frasana um að þetta hafi verið ákveðið ,,á viðskiptalegum forsendum" sem á að hljóma mjög gáfulega, en hljómar miklu frekar eins og viðkomandi ráðherra viti ekkert um málið. Stöðvum innherjasukkið straxAð lokum langar mig að rifja upp skrif Jóns Steinssonar lektors í hagfræði við Columbia háskólann í New York í Fréttablaðinu 3. desember síðastliðinn. Þar segir hann: ,,..að stjórnvöld þurfi að taka alvarlega hættuna á að innherjar rýri verðmæti þeirra fyrirtækja sem ríkisbankarnir eru lánadrottnar í með óeðlilegum viðskiptaháttum". Jafnframt segir hann: ,,..að stjórnvöld verði að tryggja að þeir sem taka ákvarðanir um skuldaniðurfærslur láti ekki undan þrýstingi innherjanna og færi skuldirnar of langt niður". Ég dreg ekki í efa að þessar ráðleggingar byggi Jón á rannsóknum sem gerðar hafa verið á hvað hefur gerst í öðrum löndum þegar svipaðar aðstæður hafa komið upp og til þess eru vítin að varast þau. Höfundur er varaformaður Íslandshreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Sjá meira
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun