Fram lagði HK 31-26 í fyrri undanúrslitaleik deildabikarsins í handbolta í dag og mætir því annað hvort FH eða Haukum í úrslitaleik á morgun.
Fram hafði yfir í hálfleik 15-12. Rúnar Kárason skoraði 8 mörk fyrir Safamýrarliðið og þeir Halldór Jóhann Sigfússon og Björn Guðmundsson 6 hvor.
Hjá HK var Valdimar Þórsson atkvæðamestur með 9 mörk, Ásbjörn Stefánsson 5 og Gunnar Steinn Jónsson 4.