Heilbrigt fjölskylduumhverfi Helga Guðrún Guðjónsdóttir skrifar 30. júlí 2008 05:45 Helga Guðrún Guðjónsdóttir skrifar um Unglingalandsmót UMFÍ: Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands, það ellefta í röðinni, verður haldið í Þorlákshöfn dagana 1.-3. ágúst. Á mótinu verður keppt í frjálsum íþróttum, glímu, golfi, hestaíþróttum, knattspyrnu, körfuknattleik, motorcross, skák og sundi. Keppendur eru á aldrinum 11 til 18 ára. Auk íþróttakeppninnar er ýmislegt í boði og ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Sérstaka athygli vekur sú mikla dagskrá sem er fyrir 11 ára og yngri en þau hafa ekki keppnisrétt á mótinu. Glæsileg leiktæki, hoppkastali, rennibraut o.fl verður sett upp á mótssvæðinu og einnig verða í boði íþróttaklúbbarnir ,,Fjörkálfaklúbbur 6-10 ára“ og ,,Sprelligosaklúbbur 5 ára og yngri“. Aðgangur er ókeypis. Fjölbreytt menningardagskrá verður alla dagana sem menningarnefnd Ölfuss hefur sett saman með mótshöldurum. Kvöldvökur verða öll kvöldin og mótinu verður slitið með kröftugri flugeldasýningu. Umgjörð mótsins í Þorlákshöfn verður glæsileg. Byggður hefur verið alvörukeppnisvöllur með stórkostlegri umgjörð. Heimamenn hafa því lagt mikinn metnað í undirbúning og framkvæmd mótsins sem er án efa skynsamlegasta og skemmtilegasta fjölskyldu-, íþrótta- og forvarnahátíð sem hægt er að hugsa sér. Mót þar sem unglingar og íþróttir eru í fyrirrúmi og stórfjölskyldan getur tekið þátt. Mótin hafa vakið verðskuldaða athygli og hafa fyrir löngu sannað gildi sitt. Þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið öðrum til fyrirmyndar í allri framkomu, hvort sem um er að ræða í keppni, leik eða umgengni. Keppnin snýst um að taka þátt og vera með og gleðjast yfir afrekunum. Það verður gaman að vera í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina. Ef þú hefur ekki tekið ákvörðun um hvert förinni skuli heitið um verslunarmannahelgina skaltu koma í Þorlákshöfn og njóta þess að upplifa unglingalandsmót. Flestir þeir sem hafa verið á mótunum hingað til koma aftur. Hvað er betra en að foreldrar og börn njóti þess að vera saman í marga daga á slíku móti? Njótum þess að vera saman á unglingalandsmóti í Þorlákshöfn þar sem saman fer keppni, skemmtun, gleði og vinarþel. Höfundur er formaður Ungmennafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Sjá meira
Helga Guðrún Guðjónsdóttir skrifar um Unglingalandsmót UMFÍ: Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands, það ellefta í röðinni, verður haldið í Þorlákshöfn dagana 1.-3. ágúst. Á mótinu verður keppt í frjálsum íþróttum, glímu, golfi, hestaíþróttum, knattspyrnu, körfuknattleik, motorcross, skák og sundi. Keppendur eru á aldrinum 11 til 18 ára. Auk íþróttakeppninnar er ýmislegt í boði og ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Sérstaka athygli vekur sú mikla dagskrá sem er fyrir 11 ára og yngri en þau hafa ekki keppnisrétt á mótinu. Glæsileg leiktæki, hoppkastali, rennibraut o.fl verður sett upp á mótssvæðinu og einnig verða í boði íþróttaklúbbarnir ,,Fjörkálfaklúbbur 6-10 ára“ og ,,Sprelligosaklúbbur 5 ára og yngri“. Aðgangur er ókeypis. Fjölbreytt menningardagskrá verður alla dagana sem menningarnefnd Ölfuss hefur sett saman með mótshöldurum. Kvöldvökur verða öll kvöldin og mótinu verður slitið með kröftugri flugeldasýningu. Umgjörð mótsins í Þorlákshöfn verður glæsileg. Byggður hefur verið alvörukeppnisvöllur með stórkostlegri umgjörð. Heimamenn hafa því lagt mikinn metnað í undirbúning og framkvæmd mótsins sem er án efa skynsamlegasta og skemmtilegasta fjölskyldu-, íþrótta- og forvarnahátíð sem hægt er að hugsa sér. Mót þar sem unglingar og íþróttir eru í fyrirrúmi og stórfjölskyldan getur tekið þátt. Mótin hafa vakið verðskuldaða athygli og hafa fyrir löngu sannað gildi sitt. Þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið öðrum til fyrirmyndar í allri framkomu, hvort sem um er að ræða í keppni, leik eða umgengni. Keppnin snýst um að taka þátt og vera með og gleðjast yfir afrekunum. Það verður gaman að vera í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina. Ef þú hefur ekki tekið ákvörðun um hvert förinni skuli heitið um verslunarmannahelgina skaltu koma í Þorlákshöfn og njóta þess að upplifa unglingalandsmót. Flestir þeir sem hafa verið á mótunum hingað til koma aftur. Hvað er betra en að foreldrar og börn njóti þess að vera saman í marga daga á slíku móti? Njótum þess að vera saman á unglingalandsmóti í Þorlákshöfn þar sem saman fer keppni, skemmtun, gleði og vinarþel. Höfundur er formaður Ungmennafélags Íslands.
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar