Svissneski frankinn er möguleg leið Bjarni Harðarson skrifar 12. mars 2008 05:00 Þorvaldur Gylfason skrifar í Fréttablaðið fyrir skemmstu og fer þar mikinn í umfjöllun um bankakreppuna og gjaldmiðilsmál. Þar eru grafalvarleg vandamál fjármálamarkaðarins í landinu afgreidd sem hrapalleg mistök eigenda, stjórnmálamenn sem óábyrgir kjánar og hugmyndir um annan gjaldmiðil en evru eða krónu sem óábyrgar furðuhugmyndir. Vandamálin eru sem sagt heimska mannanna og hana þurfa prófessorar svo sem ekki að ræða! Greinin er reyndar mjög dæmigerð fyrir þennan greinda fræðimann sem oft á athyglisverð innskot í þjóðmálaumræðuna en er samt oftar en ekki of bölsýnn og neikvæður til þess að hitta í mark. Vindgangur vanmetakenndarÞegar Þorvaldur afgreiðir hugmyndir um svissneskan franka sem furðuhugmynd manna með lélegt hagskyn fer lítið fyrir rökum. Sama á reyndar við um fleiri sem hafa reynt að skáka hugmyndinni út af borðinu með sleggjudómum. Hjá prófessornum örlar reyndar á samræðu þar sem hann nefnir að þessa leið, þ.e. upptöku hins svissneska franka, hafi aðrar Skandínavíuþjóðir ekki hugleitt! Síðar segir Þorvaldur að upptaka myntar af öðru svæði sé leið utangarðsþjóða eins og Svartfellinga. Sjálfur hef ég notið gestrisni Svartfellinga þegar ég var þar við kosningaeftirlit fyrir nokkrum árum og tel þá eiga betri einkunn skilið en að vera taldir utangarðsmenn. Það er enda svolítið skoplegt ef Evrópusambandssinnar geta ekki talað um íslenskt efnahagslíf öðru vísi en að bera okkur saman við milljónaþjóðir. Þá er von vindgangs. Líklega er Liechtenstein líka einhvers konar óvirðulegt utangarðs- og glæparíki en íbúafjöldi þar er tíundi hluti þess sem hér er og þeir nota svissneskan franka með formlegu myntbandalagi við Sviss frá 1980. Og Liectenstein er aðili að EES eins og við. Að vera smáþjóð Við Íslendingar hljótum og eigum að bera kjör okkar saman við það besta og hefur þar orðið vel ágengt, þökk sé fullveldi landsins og farsælli stjórn. En það eru alvarlegar ranghugmyndir þegar menn bera heildarafl og möguleika hagkerfis hjá 300 þúsund manna þjóð saman við það sem er hjá milljóna þjóðum. Meira að segja hin Norðurlöndin eru of stórar hagfræðieiningar til samanburðar. Við eigum ekki að hafa minnimáttarkennd yfir smæðinni, en þurfum að taka mið af henni. Frá 1997 hefur verið gerð sérstök og djörf tilraun til að láta gjaldmiðil okkar litla hagkerfis fljóta á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Það eru engin dæmi um svo lítinn gjaldmiðil í þeim ólgusjó, ekki í allri veraldarsögunni. Íslenski seðlabankinn er vegna smæðar sinnar tæplega fær um að veita íslensku viðskiptabönkunum eðlilega starfstryggingu í ólgusjó alþjóðaviðskipta. Aðalatriðið er þó að það er mikill kostnaðarauki af því fyrir almenning og atvinnulífið að búa við örsmáa sveiflugjarna hávaxtamynt. Ofurvextir og verðtrygging eru að sliga alla hina efnaminni í samfélaginu. Því er það skylda stjórnvalda að ræða þetta mál og leita lausna. Til skamms tíma hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks verið tregir til viðræðu um gjaldmiðilsmál en við sjáum nú sólarmerki breytinga með framtíðarleiðtogum þess flokks. Það er vel og mín von er að þeim takist jafnvel að ruska við forsætisráðherra landsins sem er nú farinn að taka stjórnarandstöðunni heldur ólundarlega. Erum í tilraunastarfiÞað að Svisslendingar hafa gert myntbandalag við granna sína segir að sú leið kann að vera möguleg. Ef rétt er að reikna megi með áhuga Svisslendinga á myntbandalagi við önnur lönd eru það mikilvæg rök. Það er algerlega ljóst að með svissneskum franka fengi Ísland mestan ef ekki allan sama ávinning og næðist með evru. Traust þess gjaldmiðils á alþjóðavettvangi er síst lakara en evrunnar. Önnur leið sem ber að skoða er að stjórnvöld leggi formlega blessun sína yfir upptöku á margri erlendri mynti í fjölmyntarsamfélagi. Allt væru þetta vissulega tilraunir en við erum líka í tilraunastarfi í dag og höfum verið frá a.m.k. 1997. Það breytir engu þó að milljónaþjóðir í nágrenni við okkur hafi ekki opinberlega hugleitt þessar sömu leiðir. Þær hafa heldur ekki þurft að gera tilraun með fljótandi örmynt. Við þurfum í mörgu að fara aðrar leiðir en hinar fjölmennari þjóðir. Þeir sem telja sjálfsagt að bera myntkerfi íslensku krónunnar og hagkerfið okkar saman við það þýska eða breska en er síðan gróflega misboðið þegar minnst er á Liechtenstein eða Svartfjallaland skulda okkur rökstuðning sem byggir á öðru en því að þá langi til að vera hluti af milljónaþjóð. Sjálfur er ég hæstánægður með að tilheyra smáríki og skora á krata þessa lands að vera það nú líka.Höfundur er alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun