Guðjón ráðinn forstjóri Hamley´s 23. apríl 2008 19:36 Hamley´s er styrktaraðili Williams í formúlu 1 kappakstri
Guðjón Karl Reynisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri 10-11, hefur verið ráðinn forstjóri bresku leikfangakeðjunnar Hamley´s og tekur við starfinu af Nick Mather, í byrjun maímánaðar. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group, sem er eigandi að Hamley´s, segir félagið hafa vantað nýjan forstjóra þar sem Nick Mather, sem verið hefur forstjóri Hamley´s síðastliðin tvö ár og fjármálastjóri félagsins þar á undan, ákvað að láta af störfum til að skoða ný tækifæri og þvertekur fyrir að Mather hafi verið sagt upp störfum. "Nick hefur gert góða hluti fyrir Hamley´s enda félagið verið á mikilli siglingu að undanförnu," segir Gunnar. Hann segir Guðjón strax hafa komið til greina sem eftirmaður Mather enda gert mjög góða hluti með 10-11 verslanirnar. Hvað reynsluleysi Guðjóns á leikfangamarkaðinum og þar að auki á breska markaðinum varðar, segir Gunnar að innan Hamley´s sé öflugt og ferskt lið sem þekki geirann inn og út, það sé hans trú að persónuleiki Guðjóns, reynsla í rekstri, ferskleiki og dugnaður, eins og Gunnar orðar það, henti vel inn í þann hóp sem þarna fer. Guðjón hefur störf í byrjun maímánaðar og hefur Sigurður Reynaldsson, nú þegar tekið við starfi hans sem framkvæmdastjóri 10-11 búðanna. Hamley´s veltir í kringum 10 milljörðum króna á ári og var hagnaður félagsins á síðasta ári um hálfur milljarður íslenskra króna. Alls eru verslanirnar orðnar 15 talsins, þrjár í Danmörku, eins á Regent stræti í Lundúnum, sex í verslunum House of Fraser, sem eru í einnig eigu Baugs, þá eru fjórar flugvallarbúðir og ein á lestarstöð í Lundúnum. Og nóg verður að gera hjá Guðjóni því fyrirhugað er að opna þrjár Hamley´s verslanir til viðbótar á næstunni, eina í Jórdaníu í júní og eina í Dubai í desember. "Síðan er verið að skoða fleiri tækifæri í öðrum löndum," segir Gunnar. Guðjón er íþróttakennari að mennt auk þess sem hann lauk rekstrar- og viðskiptanámi frá EHÍ árið 2000 og MBA gráðu frá Háskóla Íslands árið 2002.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Sjá meira