Óvissa um kaup á 8,5% hlut í Geysi Green 21. apríl 2008 17:35 Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geyss Green Energy.
Óvissa ríkir um hvort fyrirhuguð kaup Ólafs Jóhanns Ólafssonar og Goldman Sachs á samtals 8,5% hlut í Geysi Green Energy nái fram að ganga. Tilkynnt var um kaup þeirra á hlutnum í september á síðasta ári og herma heimildir Vísis að andvirði samningsins nemi um 30 milljónum Bandaríkjadala. Aðspurð sagði Auður Nanna Baldvinsdóttir, yfirmaður markaðs- og samskiptamála hjá Geysi Green Energy, að Goldman Sachs hefðu hætt við kaupin á 4% hlutnum. Hún benti hins vegar á Kristján Björgvinsson fjármálastjóra fyrirtækisins til nánari útskýringar. Kristján sagði í samtali við Vísi að það væri misskilningur að hætt hefði verið við kaupin. „Þeir hafa áhuga og hafa sent okkur tilboð sem okkur finnst ekkert spennandi. En það er samt ekkert allt út úr myndinni ennþá," sagði Kristján í samtali við Vísi. Kristján segir að verið sé að skoða tilboðið og málin skýrist betur í lok þessarar viku eða byrjun næstu. Í samtali við Vísi sagði Ólafur Jóhann Ólafsson að enn væri unnið að samningum en þeir gætu farið á ýmsa vegu. Ekkert væri fullfrágengið varðandi samningana. Hann sagði að menn ræddu saman nánast daglega og að málin myndu skýrast á næstu vikum. Ekki náðist í Ásgeir Margeirsson, forstjóra Geysis Green Energy, við vinnslu fréttarinnar. Almannatengsladeild Goldman Sachs hefur ekki svarað fyrirspurnum Vísis varðandi málið.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Sjá meira