Hækkandi skuldatryggingarálag veldur gengissveiflu 19. júní 2008 10:28
Ein af ástæðnum fyrir hinni miklu gengissveiflu sem nú er í gangi er að skuldatryggingarálag bankanna hefur snarhækkað í þessum mánuði. Er hækkunin á bilinu 30% til 50% eftir bönkum. Skuldatryggingarálag Landsbankans er komið í 380 púnkta en var komið niður í 170 púnkta fyrir mánaðarmótin síðustu. Skuldatryggingarálag Glitnis er 610 púnktar en var komið niður í rúmlega 400 púnkta og álagið hjá Kaupþing er 640 púnktar. Ragnhildur Jónsdóttir hjá greiningu Glitnis segir að fleiri þættir spili inn í gengissveifluna en skuldatryggingarálagið. Hún nefnir sem dæmi að krónubréf fyrir 15 milljarða kr. gjaldfalli á morgun. Hér sé að vísu ekki um háa upphæð að ræða en á móti kemur að engin ný útgáfa af krónubréfum er í pípunum. Einnig nefnir Ragnhildur að hin langa bið eftir því að ríkið nýti sér 500 milljarða króna lántökuheimild sína hafi áhrif á það að gengið lækkar svo mikið sem raun ber vitni. Lántökunni er ætlað að efla útgáfu á styttri flokkum ríkisskuldabréfa og/eða að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans. Hér má að lokum nefna að gengið hefur verið styrkjast undanfarinn klukkutíma eftir að það féll nokkuð við opnun markaðarins í morgun. Viðskiptin hafa verið líflega, en ekki óeðlilega mikil. Um 17 milljarða kr. velta hefur verið á markaðinum í morgun.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira