Endurreisnin hafin Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar 13. nóvember 2008 05:00 Sveitarfélagið Árborg og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands stóðu nýlega fyrir fundi með atvinnurekendum í Árborg til að fara yfir stöðu mála í ljósi efnahagsástandsins. Í greiningu sem unnin var af CreditInfo Ísland kom í ljós að vandi fyrirtækja í Árborg er mikill. Um helmingur fyrirtækja flokkaðist í hærri áhættuflokkum samkvæmt CIP áhættumati CreditInfo Ísland og 12,3% eiga í bráðri hættu á að verða gjaldþrota á næstunni. Hlutfall fyrirtækja sem eru á vanskilaskrá (16%) í byrjun nóvember 2008 er einnig hærra en landsmeðaltalið (13,3%). Ástæðuna má rekja til að áberandi hátt hlutfall fyrirtækja í sveitarfélaginu eru í byggingariðnaði eða eiga í fasteignaviðskiptum, eða um 40% af heildarfjölda fyrirtækja. Menn hafa séð árangurinn af Gera-ekki-neitt aðferðinni margumtöluðu. Því er hér ekki til setunnar boðið. Sem fyrsta skref í stuðningi við atvinnulífið hefur verið ákveðið að vinna að stofnun Þekkingargarða á Selfossi í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands, Fræðslunet Suðurlands og aðrar mennta- og rannsóknastofnanir á Suðurlandi. Þekkingargarðurinn mun leggja áherslu á samstarf við fyrirtæki í m.a. bygginga- og umhverfistækni, orkunýtingu, jarðfræði og garðyrkju- og landnýtingu. Einnig skiptir miklu að ríkið, opinberar stofnanir, fyrirtæki og fjárfestar komi að verkefninu, og hefur þegar verið leitað til menntamálaráðuneytisins. Þekkingargarðar gegndu lykilhlutverki við uppbyggingu atvinnulífsins í Svíþjóð og Finnlandi á áttunda áratugnum, og má nefna IDEON Science Park í Lundi og Oulu Science Park í Oulu sem fyrirmyndir. Menn áttuðu sig á að eina auðlindin sem raunverulega skiptir máli er mannauður, fólkið sem byggir samfélögin og hugmyndir þeirra. Hins vegar hefur komið skýrt fram að undanförnu að þar var gripið alltof seint til aðgerða. Afleiðingin varð mikið atvinnuleysi og upplausn í samfélaginu - eitthvað sem bæjarstjórn Árborgar hyggst koma í veg fyrir með öllum tiltækum ráðum. Höfundur er bæjarstjóri Árborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Sjá meira
Sveitarfélagið Árborg og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands stóðu nýlega fyrir fundi með atvinnurekendum í Árborg til að fara yfir stöðu mála í ljósi efnahagsástandsins. Í greiningu sem unnin var af CreditInfo Ísland kom í ljós að vandi fyrirtækja í Árborg er mikill. Um helmingur fyrirtækja flokkaðist í hærri áhættuflokkum samkvæmt CIP áhættumati CreditInfo Ísland og 12,3% eiga í bráðri hættu á að verða gjaldþrota á næstunni. Hlutfall fyrirtækja sem eru á vanskilaskrá (16%) í byrjun nóvember 2008 er einnig hærra en landsmeðaltalið (13,3%). Ástæðuna má rekja til að áberandi hátt hlutfall fyrirtækja í sveitarfélaginu eru í byggingariðnaði eða eiga í fasteignaviðskiptum, eða um 40% af heildarfjölda fyrirtækja. Menn hafa séð árangurinn af Gera-ekki-neitt aðferðinni margumtöluðu. Því er hér ekki til setunnar boðið. Sem fyrsta skref í stuðningi við atvinnulífið hefur verið ákveðið að vinna að stofnun Þekkingargarða á Selfossi í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands, Fræðslunet Suðurlands og aðrar mennta- og rannsóknastofnanir á Suðurlandi. Þekkingargarðurinn mun leggja áherslu á samstarf við fyrirtæki í m.a. bygginga- og umhverfistækni, orkunýtingu, jarðfræði og garðyrkju- og landnýtingu. Einnig skiptir miklu að ríkið, opinberar stofnanir, fyrirtæki og fjárfestar komi að verkefninu, og hefur þegar verið leitað til menntamálaráðuneytisins. Þekkingargarðar gegndu lykilhlutverki við uppbyggingu atvinnulífsins í Svíþjóð og Finnlandi á áttunda áratugnum, og má nefna IDEON Science Park í Lundi og Oulu Science Park í Oulu sem fyrirmyndir. Menn áttuðu sig á að eina auðlindin sem raunverulega skiptir máli er mannauður, fólkið sem byggir samfélögin og hugmyndir þeirra. Hins vegar hefur komið skýrt fram að undanförnu að þar var gripið alltof seint til aðgerða. Afleiðingin varð mikið atvinnuleysi og upplausn í samfélaginu - eitthvað sem bæjarstjórn Árborgar hyggst koma í veg fyrir með öllum tiltækum ráðum. Höfundur er bæjarstjóri Árborgar.
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun